14.09.2011 09:16Fjör á Landsmótsnefndarfundi á Blönduósi í gærkvöldiLandsmótsnefndin sem skipuð var af LH og BÍ fyrir ári og átti að endurskoða alla umgjörð Landsmóts ehf., skilaði lokaskýrslu á vordögum. Hefur hún farið um landið og haldið fundi með heimamönnum og farið yfir skýrsluna. Óhætt er að segja að ákveðin mál hafi ekki farið vel í Norðlendinga sem mættu á fund á Blönduósi í gær.
![]() Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaðurnefndarinnar, Stefán Haraldsson, Sigrún Ólafsdóttir og Kristinn Guðnason. Það voru þau Sveinbjörn Sveinbjörnsson, formaður nefndarinnar, Stefán Haraldsson, Sigrún Ólafsdóttir og Kristinn Guðnason sem mættu á Blönduós til að skýra frá störfum þeirra í nefndinni og rökstyðja þær afgreiðslur og tillögur sem settar eru fram í skýrslunni. Helsta gagnrýni sem nefndin fékk frá fundarmönnum var tillaga þeirra um að Landsmót ætti að halda tvö skipti sunnanlands á móti einu norðanlands. Það var mikill hiti í mönnum vegna þessa sem mótmæltu þeirri hugmynd harðlega. Vildu flestir hafa fyrirkomulagið óbreytt þ.e. að mótin verði haldin til skiptis á þessum landshlutun. Kom þó fram sú uppástunga úr sal að tvö mót yrðu haldin á Norðurlandi á móti einu á Suðurlandi. Næsta landsmót verður haldið í Reykjavík á næsta ári og voru fundarmenn efins um að rétt væri að halda mót í borg þar sem kemur skýrt fram í ritgerð Hjörnýjar Snorradóttur, Stefnumótun-Landsmót hestamanna, sem talið er tímamótaverk að því er varðar umfjöllun um landsmótin, að Landsmótin njóti vinsælda eins og þau eru og hafa verið í megin dráttum. Engar stórvægilegar breytingar beri að gera á þeim, heldur lagfæra það sem betur má fara. Helst var talið skynsamlegt af fundarmönnum að mótin yrðu haldin til skiptis á Vindhemamelum og Gaddstaðaflötum enda hafi mikil og kostnaðarsöm uppbygging farið fram á þeim stöðum og þekking til mótahalds til staðar. Skýrslu Landsmótsnefndar má sjá HÉR Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is