21.10.2011 16:45Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún og Hestamannafélagsins Þyts 2011
Matur, gleði og gaman. Þessi frábæra skemmtun hefst stundvíslega kl 20:30 en húsið opnar kl 20:00 og það verður sko stemming.
Potturinn á Blönduósi sér um matinn og á boðstólnum verður: Forréttur Grafinn lax - Reyktur lax - Sjávarréttapâté - Sveitapâté Pastarami piparskinka Meðlæti Hunangssinnepssósa - Hvítlauksdressing - Ferskt salat - Fylltar ólífur Brauð og smjör Aðalréttur Rosmarinkryddaður lambavöðvi - Hunagnsmarineruð kalkúnabringa - Grísa purusteikt Meðlæti Rauðvínssósa - Ofnbakaðar kartöflur - Eplasalat - Kartöflusalat Rauðlauks-tómatsalat - Rauðkál og baunir - Brauð og smjör ofl.
Veislustjórn verður í höndum söngdívu og fyrrum Selamálaráðherra.
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, sími 4512465 og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 26.október, athugið ekki posi. Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr 6000 matur, skemmtun og ball, en ef þú vilt hins vegar bara skella þér á dansleik í syngjandi sveiflu með Geirmundi, sem hefst kl 00:00, þá kostar það litlar 2500 kr. Enginn posi á staðnum!
Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins 2010 af Hrossaræktarsamtökum V-Hún. Gauksmýri - Grafarkot - Lækjamót - Stóra Ásgeirsá - Þóreyjarnúpur
Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun . Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, gráta og hafa gaman. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is