14.12.2011 08:55Jólaleikur LandsmótsÓ já, jólastemningin fer að ná hámarki hér á skrifstofu Landsmóts og hér eru mandarínur og piparkökur í öll mál. Við viljum endilega hvetja ykkur til að taka þátt í jólaleiknum okkar og freista gæfunnar um leið og miði á LM 2012 er keyptur á forsöluverði. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins 10.000 krónur með LH/BÍ afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er 18.000 krónur. Á Þorláksmessu förum við í sparifötin, fáum okkur smákökur, malt & appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain Horse úlpa frá Líflandi, hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum. Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Smelltu þér á miðasöluvef landsmóts svo þú eigir möguleika á vinningi! Gleðileg jól! --------------------///--------------------- DVD diskur frá LM 2011 Já það er margt að gerast hjá Landsmóti. Á skrifstofu Landsmóts er hægt að kaupa gjafabréf fyrir miða á Landsmót sem er vitanlega tilvalið í jólapakka hestamannsins! Hafið samband í síma 514 4030 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] Að lokum minnir Landsmót á DVD diskana frá mótinu í sumar á Vindheimamelum sem nú fara að koma úr framleiðslu. Gefinn verður út annars vegar DVD með hápunktum Landsmóts og hins vegar kynbótahross á Landsmóti. Þetta er gríðarlega mikið efni, eða rúmlega átta klukkustundir í það heila og frábær heimild um gott mót norður í Skagafirði í sumar. Hápunktarnir munu kosta kr. 5.000 og kynbótadiskurinn kr. 8.000. Þarna er komin önnur hugmynd að frábærri gjöf í jólapakka hestamannsins! Vonast er til að hægt verði að dreifa diskunum í verslanir á föstudaginn 16.desember en einnig er hægt að panta diskinn á skrifstofu LH/Landsmóts í síma 514 4030 og fá hann sendan í póstkröfu eða greiða með kreditkorti í gegnum síma. Diskurinn verður m.a. fáanlegur í eftirtöldum verslunum: Lífland Lynghálsi og Akureyri, Baldvin & Þorvaldur Selfossi, Knapinn Borgarnesi, Skagfirðingabúð Sauðárkróki, KS Varmahlíð og Fákasport Akureyri. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is