15.12.2011 08:16Spennandi vetur framundanÞað styttist í nýtt, spennandi og viðburðaríkt ár hjá Hestamannafélaginu Neista. Námskeiðin verða öll á sínum stað og 1. mót vetrarins verður 5. febrúar þar sem krakkarnir ætla að hittast og keppa í tölti. Verkleg kennsla í knapamerkjum hefst í 2. viku í janúar og ættu þeir sem voru í bóklegu námskeiði nú í haust að vera búnir að fá upplýsingar um það. Kennarar eru Barbara Dittmar og Hafdís Arnardóttir. Eins og undanfarin ár verður boðið uppá reiðnámskeið fyrir börn, bæði byrjendur og lengra komna og byrja þau í síðustu viku janúar. Þeir sem hafa hug á þeim námskeiðum vinsamlegast skráið ykkur á netfang Neista fyrir 15. janúar. Kennari verður Ragnhildur Haraldsdóttir. Birna Tryggvadóttir kemur og verður með námskeið 27.-29. janúar bæði almennt fyrir börn, unglinga og fullorðna og einnig keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna. Hún tekur einnig í einstaklingskennslu ef þess er óskað. Skráning er á netfang Neista fyrir 15. janúar. Einnig má fá uppslýsingar hjá Selmu í síma 661 9961. Fyrsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni verður á Hvammstanga 10. febrúar og keppt veður í fjórgangi. Þangað ætlum við Neistafélagar auðvitað að mæta. Fyrir keppni verður boðið uppá bóklegar og verklegar æfingar og verður það auglýst síðar. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is