07.02.2012 22:48Húnvetnska liðakeppnin - fjórgangurÞá
fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður 17.
febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 14.
febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Keppt verður í
fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki
17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn
og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða.
Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt -
fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit
verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk -
fegurðartölt. Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Mótanefnd Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is