08.03.2012 15:36Húnvetnska liðakeppnin - fimmgangur og töltNæsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar er fimmgangur í 1. og 2. flokki og tölt T7 í 3. flokki og tölt T3 í unglingaflokki, fædd 1995 og seinna (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt) en það verður föstudaginn 16. mars nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 13. mars. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Í fimmgangi verða tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er, tölt, brokk, stökk, fet og skeið (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Töltið verður einnig stjórnað af þul og það verður ekki snúið við og er prógrammið í tölti T7 hægt tölt og svo frjáls ferð á tölti. Í tölti T3 er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt. Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Mótanefnd Skrifað af selma Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is