09.07.2012 22:16Íslandsmót 2012 á Vindheimamelum![]() Skráning hefst þriðjudaginn 10 júlí og líkur kl: 16:00 fimmtudaginn 12 júlí. Hægt er að senda skráninguna á tölvupósti á [email protected]. Þá verður tekið á móti skráningum í gegnum síma 455-7100 milli 13:00 - 16:00 þessa þrjá daga. Umsjón með skráningu hefur Steinunn Anna Halldórsdóttir. Skráningargjöld Skráningargjald er 5.000 kr fyrir hverja keppnisgrein (hverja skráningu). Reikningsnúmer: 1125 - 26 - 1630 kt: 520705-1630 Senda þarf kvittun í tölvupósti á [email protected] Skýring: Nafn og kt. knapa sem greitt er fyrir Greiðslur þurfa að hafa borist fyrir kl: 16:00 fimmtudaginn 12. júlí. Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram: Nafn hests og IS númer Hestamannafélag sem keppt er fyrir Keppnisgreinar Hver sé greiðandi, ef það er ekki knapinn sjálfur. Hægt verður að fá spiluð óskalög keppenda þegar keppnin fer fram en þá verða keppendur að setja sig í samband við tónlistarstjóra á keppnisstað með lagið tilbúið á disk eða kubb. Minnum á að lágmörk í einstökum greinum eru eftirfarandi: Árangur frá árunum 2011 og 2012 gildir. Hestahald á Íslandsmóti Nægt svæði er á Vindheimamelum þar sem menn geta tjaldað og girt fyrir hross sín. Á Vindheimamelum eru tvö hesthús. Annað húsið verður haft laust til afnota yfir daginn fyrir keppendur. Hitt húsið er hugsað sem stóðhestahús og þarf að panta fyrir stóðhestana fyrirfram. Rúnar Hreinsson (867-4256) tekur á móti pöntunum fyrir stóðhesta. Rúnar mun einnig veita upplýsingar um hvert sé best að leita vilji menn komast í hesthús í nágrenni Vindheimamela. Varðandi gjaldtöku, þá kostar ekkert að vera með beitarhólf á Vindheimamelum. Ekki verður tekið gjald fyrir stíur í stóðhestahúsunum á Vindheimamelum og verður þar hey í boði. Hinsvegar verða menn sjálfir að skaffa undirburð og annast umhirðu og eftirlit með hestunum, en þeir verða þar á ábyrgð umsjónamanna sinna. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is