Héraðsmót USAH í hestaíþróttum verður haldið 28. júlí nk. á Neistavelli.
Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi, tölti, T2, gæðingaskeiði og 100 m skeiði, fjórgangi ungmenna, unglinga og barna. Mótið er opið fyrir alla. Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein.
Skráningar á mótið skulu
berast á netfangið [email protected] fyrir kl. 22.00 fimmtudagskvöldið 26. júlí.
Skráningargjöld
verða 1.500 kr fyrir fyrstu skráningu og 1.000
kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.
Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein.
Skráningargjald
leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða knapa/hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang.