04.09.2012 08:36Ævintýri norðursins 2012Stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt. ![]() Laugardaginn 15. september næstkomandi verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal. Öllum er velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr. Lagt verður upp frá Strjúgsstöðum í Langadal klukkan 10. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt klukkan 14 og haldið þaðan klukkan 16. Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson.
Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt. Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag á Strjúgsstöðum, við sandnámu (norðan afleggjara). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Um kvöldið verða veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Stórdansleikur með Pöpum verður í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar klukkan 23. Barinn opinn og er aldurstakmark 18 ár. Sunnudaginn 16. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt klukkan 11. Skemmtileg alíslensk stemning. Veitingasala í réttarskála. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is