13.09.2012 17:48Ævintýri norðursins 2012 ***ATH. BREYTT DAGSKRÁ***Stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt Laugardaginn 15. september næstkomandi verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal. Öllum er velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr. Lagt verður upp frá Skrapatungurétt kl. 11:00. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt kl. 13:00 og haldið þaðan kl. 15:00. Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson.
Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt. Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag í Skrapatungurétt. Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Um kvöldið verða veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Stórdansleikur með Pöpum verður í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar kl. 23:00. Barinn opinn og er aldurstakmark 18 ár. Sunnudaginn 16. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt kl. 11:00. Skemmtileg alíslensk stemning. Veitingasala í réttarskála. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is