27.11.2012 20:52Vetrarþjálfun og járningEndurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands vekur athygli á tveimur áhugaverðum námskeiðum sem í boði eru á Hvanneyri nú í desember og janúar. Undirbúningur vetrarþjálfunar með Agli Þórarinssyni Egill Þórarinsson er einn af reyndustu reiðkennurum landsins. Hann á að baki langan og farsælan feril að baki í reiðkennslu, þjálfun, sýningu kynbótahrossa og keppnishrossa. Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja undirbúa sig vel fyrir komandi þjálfunartímabil. Farið verður yfir atriði sem vert er að hafa í huga í byrjun vetrar, atriði sem snúa bæði að hesti og knapa. Nú er rétti tíminn til að vinna í því sem krefst nákvæmni og þolinmæði; leiðrétta taumsamband og höfuðburð, lengja og teygja á yfirlínu og styrkja bak. Námskeiðið verður einstaklingsmiðað og leitast verður eftir að meta hvern knapa og hest og leggja áherslu á að byggja og bæta grunninn í þjálfuninni sem síðan verður hægt að byggja áframhaldandi vetrarþjálfun á. Kennari: Egill Þórarinsson, reiðkennari og sýninga- og keppnisknapi. Tímar: lau. 8. des. kl 9:30-19:00 (einkatímar) og sun. 9. des. Kl 9:00-17:00 (sýnikennsla, hópatímar, o.fl.) í Hestamiðstöð Lbhí á Miðfossum. Með fyrirvara um breytingar. Verð: 26.500.- (kennsla, aðstaða fyrri hross, hádegissnarl á sunnudegi). Skráningarfrestur er til 3. des. Skráningar: [email protected] eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 7.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected] Járningar og hófhirða Einnig er búið að opna fyrir skráningar á námskeiðið Járningar og hófhirða sem fer fram í janúar. Námskeiðið er einkum ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum. Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10. Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum. Tími: Lau. 12. jan., kl. 10:00-18:00 og sun. 13. jan., kl. 9:00-16:00 (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum. Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar). Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000. Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Minnum á Starfsmenntasjóð bænda - www.bondi.is Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is