04.01.2013 19:56Stofnfélagi Neista heiðraðurHestamannafélagið Neisti var stofnað árið 1943 í Dalsmynni. Félagið fagnar því 70 ára afmæli á þessu ári. Stofnfélagar voru 40 talsins, en eini eftirlifandi félaginn er Gísli Pálsson frá Hofi, þá kenndur við Sauðanes. Gísli verður 93 ára í mars og dvelur nú á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Stjórn Hestamannafélagsins Neista ákvað í tilefni af 70 ára afmæli félagsins að gera Gísla að heiðursfélaga Neista. Heimsótti stjórnin hann og afhenti honum viðurkenningu því til staðfestingar. Gísli er vel að viðurkenningunni kominn og þótt hann hafi ekki haft hestamennsku að atvinnu, þá átti hann meðal annarra stóran þátt í uppbyggingu Hólaskóla, en þar var hann formaður stjórnar í mörg ár. Hestamannafélagið Neisti óskar Gísla og fjölskyldu hans velfarnaðar á komandi árum. Hjörtur Karl Einarsson Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is