10.04.2013 11:13Frá mótanefndFrá mótanefnd Hestamannafélagsins Neista
Mótanefnd Hestamannafélagsins Neista vill þakka öllum þeim sem komu að mótum vetrarins með einum eða öðrum hætti. Þátttaka var mjög góð á vel flestum mótunum svo eftir var tekið um land allt, og sýnir að áhugi er hér mikill á svæðinu fyrir hestamennsku og keppni á hestum. Við viljum á meðan að veturinn er enn í fersku minni, óska eftir því við félagsmenn að þeir komi með tillögur varðandi framtíð mótaraðarinnar og eða tilhögun móta því að enn er mótaröðin í mótun. Teljum við að allir hafi nokkuð gaman að þessu. Hægt er að senda tillögur og eða bara vangaveltur á netfangið [email protected]. Hér meðfylgjandi eru nokkrar tillögur sem að borist hafa okkur: · Mótin verði eftirfarandi, T7 í byrjun vetrar, fjórgangur, ístölt, fimmgangur og svo tölt sem lokamót. · Stigagjöf verði sú sama fyrir öll mótin ( sem að við teljum víst að verði) · Skráningargjöld verði hækkuð í 2.000 krónur og þá verði hætt að rukka inn aðgangseyrir til að hvetja áhorfendur til að mæta · Samfara mótaröðinni verði einnig liðakeppni sem gæti t.d. verið með svipuðum hætti og í húnv.liðakeppninni þar sem að einn knapi úr hverjum flokki myndi eitt lið. · Við birtingu úrslita á fjölmiðlum verði einnig gefnar upp niðurstöðutölur úr úrslitunum t.d. 5,8 / 6,3 eða álíka. Komið hefur fram ábending frá hrossaræktendum og tamningafólki að það vilji fá tölur birtar af sínum hrossum svo að hægt sé að sýna fram á keppnisárángur. · Tillögur hafa líka komið fram að hafa keppni í Smala. · Veitingasala verði með sama hætti ef vilji er fyrir því meðal tíundubekkinga þar sem að reynsla af henni sé góð
Skrifað af HBE Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is