13.04.2013 09:30Grunnskólamót á Sauðárkróki - lokamót !Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra verður haldið
Grunnskólamótinu sem halda átti sunnudaginn 21. apríl í reiðhöllinni Svaðastaðir, hefur verið flýtt vegna annarra viðburða sem koma inn á sunnudaginn og laugardaginn. Ákveðið hefur verið að halda það föstudaginn 19. apríl og byrja kl. 18:00. Þetta er þriðja og síðasta mótið í vetur og því spennandi að sjá hvaða skóli fer heim með bikarinn til varðveislu næsta árið!
Keppt verður í : Fegurðarreið 1. - 3. bekkur -- Tvígangur 4. - 7. bekkur - Þrígangur 4. - 7. bekkur - Fjórgangur 8. - 10. bekkur - Skeið 8. - 10. bekkur
Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudaginn 17. apríl. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda - bekkur - skóli - nafn hests, uppruni og litur - upp á hvora hönd er riðið. Skráningar sendist á [email protected]
Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Úr reglum keppninnar : Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur fegurðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. xx Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. * Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. ----- 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur 6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. - 7. bekk, verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum. 7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur. 11. Í Tölti 4. - 7. og 8. - 10. bekk og Fjórgangi 8. - 10. bekk skulu riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is