08.05.2013 14:59Héraðssýning kynbótahrossa á Hvammstanga 21.-24. maíKynbótasýning
fer fram á félagssvæði Þyts á Hvammstanga dagana 21. til 24. maí. Skráning
og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com
þar sem valið er "Skrá
hross á kynbótasýningu". Einnig
er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu RML (rml.is) í gegnum flýtihnapp
á forsíðunni.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er þriðjudaginn 14. maí næstkomandi. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected]. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði. Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða á heimasíðu RML undir "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin [email protected] og [email protected]. Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu. Fram- og afturfótaskeifur þurfa að vera smíðaðar úr jafnbreiðum teini. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is