23.01.2014 21:15Tjarnartölt 2014
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur halda sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn laugardaginn 25. janúar nk og hefst mótið kl 12:30. Ísinn er spegilsléttur að sögn Jóhanns svo nú er um að gera að skrá á fyrsta mót ársins.
Keppt verður í tölti í 3 flokkum: 1. 1.flokki 2. 2.flokki 3. Barna og unglingaflokki. 5 keppendur í úrslit í öllum flokkum.
Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 til 2010 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið. Skráning á netfangið [email protected] . Lokaskráningardagur er föstudagurinn 24. janúar, skráningargjald er 1.000.- fyrir fullorðna hver skráning en 500 hver skráning fyrir börn og unglinga. Skráningargjald má leggja inn á 0159-26-001081 kt. 550180-0499. Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992 Hægt að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir. Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri. Ef fella þarf mótið niður vegna veðurs birtist það á heimsíðu Þyts á laugardagsmorgun.
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur Skrifað af selma Flettingar í dag: 1877 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931472 Samtals gestir: 88590 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:46:10 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is