09.02.2015 11:27Vinamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra - Þrautabraut/Smali/Skeið
Vinamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verða: 15.febrúar á Blönduós - þrautabraut, smali og skeið 15.mars á Sauðárkróki - fegurðarreið, tvígangur, þrígangur, fjórgangur og skeið 12. apríl á Hvammstanga - fegurðarreið, tölt og skeið Þrautabraut, smali og skeið verða í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 15. febrúar kl. 14.00 Keppnisgreinar eru: 1. - 3. bekkur þrautabraut 4. - 7. bekkur smali 8. - 10. bekkur smali 8. - 10. bekkur skeið Skáningar þurfa að hafa borist fyrir miðnætti miðvikudaginn 11.02. á netfangið:[email protected] Fram þarf að koma: nafn, bekkur og hestamannafélag knapa, nafns hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 500 kr fyrir næstu skráningar og skal greiða á staðnum áður en mót hefst (ekki tekið við greiðslukortum). Reglur: Þrautabraut 1. - 3. Bekkur Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál, þar skal stöðva hestinn og halda svo áfram. Smali 4. - 7. og 8 .- 10. Bekkur Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Ef tunna dettur er bætt við 4 sekúndum og ef tunnu er sleppt bætast við 4x4 sekúndur. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn. Ef hleypt er yfir pallinn bætast við 4x4 sekúndur. Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Skrifað af Selmu Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is