18. mars kl. 13.20 - Það er nú þegar fullbókað á námskeiðið!

|
|
Almennt reiðnámskeið með Sigurði Sigurðarsyni verður haldið á Blönduósi föstudaginn 25. mars og laugardaginn 26. mars.
Knapar á öllum stigum hestamennskunar eru hvattir til þess að skrá sig.
Kennslufyrirkomulagið er þannig að hver þátttakandi fær fjóra einkatíma, tvo á föstudegi og tvo á laugardegi.
Frábært tækifæri til þess að öðlast meiri þekkingu og fá aðstoð reiðkennara til þess að fá reið- og eða keppnishestinn sinn enn betri.
Skráning er á netfangið [email protected], síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 22. mars.
Athugið að einungis verða tíu þátttakendur, þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær. Verð: 20.000 krónur.