11.02.2018 22:47SAH-mótaröðin. Fjórgangur og T7
SAH – Mótaröðin. Fjórgangsmót í Reiðhöllinni Arnargerði. Föstudagskvöldið 16. febrúar kl. 19:00 verður Fjórgangur og T7 í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í flokkum 13 ára og yngri, 14 til 17 ára, áhugamannaflokk og opnum flokki. Áskilinn er réttur til að sameina flokka verði skráning takmörkuð. Um er að ræða fyrsta mótið í SAH – mótaröðinni sem styrkt er af SAH afurðum. Í fjórgangi er riðinn einn hringur á hægu tölti, einn hringur á greiðara tölti, einn hringur á brokki, einn hringur á stökki og hálfur á feti. Áður en keppandi hefur keppni má hann ríða hálfan hring þ.e. hefja keppni að sunnanverðu. Keppandi ræður röð gangtegunda en í lok keppni skal hægja niður á fet. Í T7 er riðinn einn hringur á hægu tölti og einn hringur að eigin vali. Skráningar berist á netfangið: [email protected] fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 15. Febrúar. Skráningargjald í yngri flokkum er kr. 1.500 og kr. 2.000 í öðrum flokkum. Fram komi nafn á hrossi, aldur og litur. Skráningargjöld má greiða fyrirfram inn á 0307-26-055624 kt. 480269- 7139. Nefndin. Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is