04.01.2019 10:15Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
Veturinn 2019 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Skráning fer fram hjá Guðrúnu Rut á [email protected] eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.
Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 14 skipti Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum og þriðjudögum Námskeiðið hefst 21. janúar og lýkur í lok apríl Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. (að hámarki, verður lækkað ef vel gengur og tekið tillit til þess ef börn hætta eftir hluta annarinnar) Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 9 skipti Ætlað fyrir 7 ára og yngri. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Námskeið hefst sunnudaginn 3. febrúar Kennt þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði Kennari: Guðrún Rut Hreiðardóttir Verð: 5.000 kr.
Knapamerki Ef næg þátttaka næst verður boðið upp á námskeið í knapamerkjum. Áhugasamir sendi tölvupóst á [email protected] fyrir 15. janúar með upplýsingum um aldur og fyrri knapamerkjamenntun.
Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is