Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga eru að hefjast í reiðhöllinni. Boðið er upp á knapamerki 1, almennt reiðnámskeið og pollanámskeið og eru tæplega 30 krakkar skráðir á námskeiðin. Kennt verður á mánudögum, fimmtudögum og sunnudögum.
Pollanámskeið er kennt á sunnudögum frá 13:00-14:00 (2 hópar)
Almennt reiðnámskeið er kennt á mánudögum frá 17:00-19:00 (2 hópar)
Knapamerki 1 (1 hópur) er kennt á mánudögum og fimmtudögum. Á fimmtudögum eru verklegir tímar frá 17:15-18:00 og á mánudögum eru ýmist bóklegir eða
verklegir tímar frá 19:00-20:30 (sjá nánar á dagatali í reiðhöll).
Sigrún Rós kennir knapamerki 1 og Guðrún Rut kennir pollanámskeið og almennt reiðnámskeið.
