03.01.2020 10:19Reiðnámskeið veturinn 2020
Veturinn 2020 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Skráning fer fram hjá Önnu Margréti á [email protected] eða í síma 848-6774. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.
Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 14 skipti (1 x í viku) Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst 20. janúar og lýkur í lok apríl. Kennt á mánud. og/eða miðvikud. Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 9 skipti Ætlað fyrir 7 ára og yngri. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði kl. 16. Námskeið hefst 2. febrúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 5.000 kr.
Reiðnámskeið (keppnisnámskeið) - 4 helgar – börn, unglingar og ungmenni Lögð verður áhersla á vel skipulagða þjálfun og uppbyggingu keppnishests og knapa. Kennslan verður einstaklingsmiðuð, hver knapi setur sér markmið í sinni þjálfun og unnið verður markvisst að þeim markmiðum. Gerðar verða meiri kröfur til ásetu, stjórnunar, jafnvægis og gangskiptinga en á almennu reiðnámskeiði. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrarformi. Námskeiðið fer að miklu leyti fram inní reiðhöll, þangað til veður leyfir að farið verði út á keppnisvöllinn. Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá sem stefna á að taka þátt í Landsmóti hestamanna eða öðrum mótum í vetur og næsta sumar. Kennt verður fyrstu helgi í hverjum mánuði febrúar til maí. Kennsla hefst 1. febrúar. Kennari er Bergrún Ingólfsdóttir Boðið verður upp á eftirfylgni fyrir þá sem fara á Landsmót í framhaldi af þessu námskeiði Verð 20.000 kr.
Knapamerki 1 Verklegi hlutinn:
Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða. Kennt verður einu sinni til tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum 14 verklegir og 6 bóklegir tímar, aldurstakmark er 12 ára Námskeiðið hefst 20. janúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 30.000 kr. með prófi og skírteini Utan félags, verð 45.000 kr. með prófi og skírteini
Knapamerki 2 Verklegi hlutinn:
Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða Kennt verður einu sinni til tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum 16 verklegir og 8 bóklegir tímar Námskeiðið hefst 20. janúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 35.000 kr. með prófi og skírteini Utan félags, verð 50.000 kr. með prófi og skírteini
Skrifað af Anna Margret Jonsdottir Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is