29.01.2020 16:55Úrslit foalda- og ungfolasýningarFolalda- og ungfolasýning Hestamannafélagsins Neista og Samtaka hrossabænda í A-Hún fór fram í reiðhöllinni á Blönduósi sunnudaginn 26. janúar. Það var létt yfir mönnum og hrossum og veðrið lék við okkur. Alls voru 23 folöld mætt til leiks auk nokkurra ungfola og dómari var Eyþór Einarsson. Hestamannafélagið Neisti og Samtök hrossabænda í A-Hún þakka kærlega fyrir þátttökuna, áhorfið og aðstoðina. Jafnframt vilja félögin sérstaklega þakka þeim sem styrktu okkur í formi folatolla og þakka Líflandi fyrir þá vinninga sem þeir létu okkur í té. Folatollar undir eftirfarandi hesta voru í vinning: Goði frá Bjarnarhöfn - Ae. 8,57 Bósi frá Húsavík - Ae. 8,54 Hlekkur frá Saurbæ - Ae. 8,48 Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 - Ae. 8,37 Borði frá Fellskoti - Ae. 8,24 Farsæll frá Litla-Garði - Ae. 8,21 Steinar frá Stíghúsi - Ae. 8,13 Galdur frá Geitaskarði - Ae. 8,00 Þeir folatollar sem okkur voru færðir komust allir í góðar hendur og verða vonandi til þess að færa okkur flotta gripi fyrir framtíðar sýningar. Úrslit í flokki hestfolalda: 1.sæti: Kveikur frá Blönduósi F. Mugison frá Hæli M. Aska frá Stóra-Búrfelli Eigandi og ræktandi: Guðmundur Sigfússon 2. sæti: Klakkur frá Blönduósi F. Borði frá Fellskoti M. Mýra frá Ármóti Eigandi og ræktandi: Guðmundur Sigfússon 3. sæti: Kolfreyr frá Mánaskál F. Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M. Perla frá Seljabrekku Ræktendur og eigendur: Kolbrún Á. Guðnadóttir og Atli Þór Gunnarsson Úrslit í flokki merfolalda: 1. sæti: Alma frá Blönduósi F. Arfur frá Blönduósi M. Penta frá Blönduósi Eigendur og ræktendur: Eyjólfur Guðmundsson og Sigríður Grímsdóttir 2. sæti: Alúð frá Mánaskál F. Skjár frá Skagaströnd M. Assa frá Þóroddsstöðum Ræktendur og eigendur: Kolbrún Á. Guðnadóttir og Atli Þór Gunnarsson 3. sæti: Dásemd frá Hvammi 2 F. Draupnir frá Stuðlum M. Esja frá Hvammi 2 Eigandi og ræktandi: Sonka Suska Úrslit ungfola: Tveggja vetra: 1. sæti: Prins frá Skagaströnd F. Eldur frá Naustum III M. Ína frá Skagaströnd Ræktandi og eigandi: Kristín Birna Guðmundsdóttir Þriggja vetra: 1. sæti: Askur frá Fremstagili F. Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M. Prinessa frá Grundarfirði Ræktendur og eigendur: Sigurður E. Stefánsson og Ágústa Hrönn Óskarsdóttir Skrifað af Kolbrún Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is