07.05.2021 19:56Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót VesturlandsHestamannafélögin Neisti og Þytur standa fyrir Úrtökumóti fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í sumar í Borgarnesi. Stefnt er á að Úrtöku- og Félagamótið fari fram 12-13 júní, á vallarsvæði Þyts með þeim fyrirvara að nýji völlurinn þeirra verði í lagi (annars verður það haldið í Neista). Boðið verður uppá A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk og pollaflokk. Við viljum minna á að þátttaka á mótinu er bundin aðild að hestamannafélögunum Neista og Þyt í barna-, unglinga- og ungmennaflokki og hross þurfa einnig að vera í eigu félagsmanna. En í A- og B-flokki þarf eigandi hestsins (keppandans) að vera í Neista eða Þyt. Fyrir hönd Neista komast 5 inn í hverjum flokki og eru tveir vara hestar. Það verða riðinn úrslit á Úrtöku- og Félagsmótinu en forkeppnin gildir þó inn á Fjórðungsmótið.
Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
Með góðum kveðjum mótanefnd Neista
Skrifað af Selma Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is