30.11.2022 21:07Frá æskulýðsnefndHestamannafélagið Neisti Reiðnámskeið veturinn 2023 Veturinn 2023 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar. Skráning fer fram hér https://forms.gle/cEixFMtK7zArgzxGA fyrir 20.12.2022. Almennt reiðnámskeið fyrir börn - 1 x í viku (sunnudagur) Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í byrjun maí (eftir Æskan og Hesturinn). Kennari: Lilja Maria Suska Verð: 15.000kr
Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna 1 - 1 x í viku (sunnudagur) Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar. Verð: 5.000 kr. ___________________________________________________________________________ Knapamerki 1 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Ath: Nemendur á unglingastigi grunnskóla geta notað knapamerki sem valfag. Einnig safna þau einingum fyrir framhaldsskóla. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 2 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Ath: Nemendur á unglingastigi grunnskóla geta notað knapamerki sem valfag. Einnig safna þau einingum fyrir framhaldsskóla. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 30.000 fullorðin: kr. 40.000 ___________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna (einnig sem undirbúningur fyrir knapamerki 3) Fyrirkomulag:
Lýsing Almennt reiðnámskeið þar sem farið er í æfingar til að bæta hestinn. Bæta samspil knapa og hests. Þjálfa gangtegundir og undirbúningur fyrir keppni. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000
Sonja og Katharina
æskulýðsnefnd Skrifað af Selma Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is