Kjör Íþróttamanns ársins 2022 hjá USAH var með breyttu sniði og var athöfnin nú í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi 29. desember 2022.
Þar varð okkar fólk í 2. og 3. sæti en Íþróttamaður ársins var Sigríður Soffía Þorleifsdóttir frá Ungmennafélagi Bólstaðarhlíðarhrepps.
Í 2. sæti varð Una Ósk Guðmundsdóttir og í þriðja sæti varð Guðrún Rut Hreiðarsdóttir.
Við sama tilefni voru í fyrsta sinn veittar viðurkenningar til ungra og efnilega íþróttamanna hjá USAH sem tilnefnd voru af aðildarfélögum sambandsins. Eftirtalin hlutu viðurkenningar:
Elías Már Víðisson, Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps, Elísa Bríet Björnsdóttir, Umf Fram, Harpa Katrín Sigurðardóttir, Umf. Geislum, Samúel Ingi Jónsson, Skotf. Markviss, Sigurjón Bjarni Guðmundsson, Umf. Hvöt og Sunna Margrét Ólafsdóttir, Hestamannaf. Neista.