08.07.2024 12:19Landsmót hestamanna 2024Þá er landsmóti hestamanna í Reykjavík lokið að þessu sinni. Við hjá hestamannafélaginu Neista áttum flotta fulltrúa á mótinu og erum við virkilega stolt af þeim! Í öllum flokkum voru virkilega sterkir hestar sem gerðu mótið spennandi og skemmtilegt
Í A flokki áttum við tvo fulltrúa, Viðar frá Hvammi og Hátíð frá Söðulsholti. Lilja Maria Suska keppti á Viðari og hlutu þau 8.35 í einunn. Ásdís Brynja Jónsdóttir keppti á Hátíð og hlutu þær 8.26 í einkunn.
Í B flokki áttum við líka tvo fulltrúa, Húnu frá Kagaðarhóli og Mídas frá Köldukinn 2. Glódís Rún Sigurðardóttir keppti á Húnu og hlutu þær 8.51 í einkunn. Egill Þórir Bjarnason keppti á Mídasi og hlutu þeir 8.26 í einkunn.
Fyrir okkar hönd fór eitt ungmenni á mótið, hún Inga Rós Suska Hauksdóttir. Hún keppti á merinni Freistingu frá Miðsitju og hlutu þær 8.04 í einkunn.
Systurnar Sunna Margrét og Salka Kristín Ólafsdætur kepptu í unglingaflokk. Sunna keppti á Topp frá Litlu-Reykjum og hlutu þau 8.27 í einkunn. Salka keppti á Gleði frá Skagaströnd og hlutu þær 8.21 í einkunn
Meðfylgjandi eru myndir af þessum flottu fulltrúum okkar, í sömu röð og þau eru talin upp hér að ofan.
Skrifað af Hafrún Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 26 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931193 Samtals gestir: 88586 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:40:08 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is