29.11.2024 12:41Námskeið í vetur - Skráning hafin!Reiðnámskeið veturinn 2025 Hestamannafélagið Neisti mun bjóða upp á reiðnámskeið frá miðjum janúar til apríl loka veturinn 2025. Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Nánari upplýsingar hjá Æskulýðsnefnd Neista – Netfang: [email protected] Kennarar: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Sigríður Vaka Víkingsdóttir Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/hfneisti fyrir 04.12.2025. Almennt reiðnámskeið fyrir börn 7-14 ára - 1x í viku Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 25.000 kr. __________________________________________________________________________ Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna - 1 x í viku Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 30.000 kr. ___________________________________________________________________________ Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar og lýkur í lok apríl . Verð: 15.000 kr. __________________________________________________________________________ Námskeið fyrir unglinga og/eða ungmenni – 1 x í viku Einstaklingsmiðað námskeið fyrir hvern knapa og hest. Lögð verður áhersla á ásetu og stjórnun, líkamsbeytingu knapa og hests og samspil þeirra á milli. Farið verður yfir gangtegundir, ábendingar og æfingar ásamt öðru sem snýr að þjálfun. Skipt verður í hópa eftir getu. Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl. Verð: 25.000 kr. __________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna - 1x í viku Almennt reiðnámskeið sem er einstaklingamiðað fyrir hvern knapa og hest. Markmið námskeiðsins er að bæta líkamsbeytingu knapa á hestbaki svo að knapi geti hjálpað hestinum sínum að bera sjálfan sig og knapa sem best. Knapa kennt að setja sér raunhæft markmið í þjálfun og stefna að því markmiði með aðstoð kennara. Námskeið hefst um miðjan janúar og lýkur í lok apríl . Verð: 25.000 kr. Skrifað af Hafrún Flettingar í dag: 3180 Gestir í dag: 55 Flettingar í gær: 719 Gestir í gær: 32 Samtals flettingar: 832363 Samtals gestir: 83290 Tölur uppfærðar: 5.2.2025 11:32:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is