27.01.2025 20:12

Fundarferð um landið

Almennir fundir í fundarröð stjórnar hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hrossaræktarinnar hefjast í febrúar. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

  • Málefni hrossabænda
  • Notkun keppnisdóma í kynbótamatinu
  • Þróun kynbótadómsins
  • Hrossaræktin almennt

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.

Fulltrúar hrossabænda og fagráðs, þau Nanna Jónsdóttir formaður stjórnar hrossabænda og fagráðs og Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni.

Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

4. febrúar þriðjudagur Borgarnes – Félagsheimili Borgfirðings kl. 20:00.

5. febrúar miðvikudagur Eyjafjörður - Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.

6. febrúar fimmtudagur Skagafjörður - Tjarnarbær Sauðárkrókur kl. 16:00.  

7. febrúar föstudagur V-Húnavatnssýsla – Víðihlíð kl. 20:00.

10. febrúar mánudagur Reykjavík – Reiðhöllin í Víðidal kl. 20:00.

11. febrúar þriðjudagur Suðurland – Rangárhöllin Hellu kl. 20:00

17. febrúar mánudagur Austurland – Félagsheimili Freyfaxa Stekkhólma kl. 20:00.

18. febrúar þriðjudagur – Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

Flettingar í dag: 1446
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2250
Gestir í gær: 107
Samtals flettingar: 1022155
Samtals gestir: 91320
Tölur uppfærðar: 9.5.2025 05:57:07

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere