Færslur: 2008 Febrúar28.02.2008 23:24Námskeið í hestakúnstum :-)![]() Á dögunum var haldið námskeið í reiðhöllinni á Blönduósi í því sem kallað var "Hestakúnstir" Þátttaka var góð um 20 manns bæði börn og fullorðnir. Námskeiðið byrjaði kl:10 með sýnikennslu
og bóklegu og svo var tekið til við kúnstirnar þ.e.a.s. verklegar æfingar og í hádegishlé var pizzuhlaðborð og námskeiðinu lauk um kl.17.00 ![]() ![]() ![]() 27.02.2008 13:11Meira um ís-landsmótið 2008 á Svínavatni
Fram þarf að koma, nafn hests, uppruni, aldur, litur, keppnisgrein og knapi. Skráningar berist á netfangið [email protected] fyrir kl 10. miðvikudagskvöldið 5. mars.
Skráningagjald. Opinn flokkur tölt, A og B flokkur, 3.000 kr. á grein. Best er að skráningagjöld séu greidd inn á reikning 0307- 13- 110496 kt.480269-7139 um leið og skráð er, þar sem nafn greiðanda er sett sem skýring greiðslu. Einnig verður hægt að greiða skráningagjöld á staðnum ( með peningum, ekki korti). Nú þegar er búið að bóka þó nokkuð í gistingu á Hótel Blönduósi, en hótelið hefur auk hótelherbergja, gistiheimili og smáhýsi til leigu. Einnig er góð gistiaðstaða fyrir menn og hross á Hofi í Vatnsdal og bændagisting er í boði víðar. Þar sem vel hefur gengið að fá styrktaraðila hefur verið ákveðið að bæta við verðlaunaféð þannig að það verði, auk bikara fyrir átta efstu sætin í A og B flokkum og opnum flokki í tölti, 100.000. kr. fyrir fyrsta sæti, 40.000. kr. fyrir annað sæti og 20.000. kr. fyrir þriðja sæti. Eftirtaldir eru í undirbúningsnefnd og geta þeir veitt nánari upplýsingar. Tryggvi Björnsson s. 8981057 [email protected] Ólafur Magnússon s. 8960705 s[email protected] Jakob Víðir Kristjánsson s. 8940118 [email protected] Jón Gíslason s. 4524077 [email protected] Ægir Sigurgeirsson s. 8966011 [email protected] 27.02.2008 10:00Ís-Landsmótið 2008 á Svínavatni
Eins og kunnugt er verður haldið "Ís-landsmót" á Svínavatni í A-Hún. laugardaginn 8. mars. Allar nauðsynlegar tilkynningar og upplýsingar þar um verður að finna á þessari síðu: Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með síðunni ef t.d. þarf að gera breytingar á dagskrá á síðustu stund. Þar sem mótið í fyrra heppnaðist í alla staði mjög vel og þátttaka fór fram úr öllum væntingum hefur verið ákveðið að fækka keppnisflokkum niður í þrjá, þannig að nú verði einungis keppt í A og B flokki og opnum flokki í tölti, til þess að dagskráin verði aðeins styttri en snarpari og metnaðarfyllri. Verðlaun, auk bikara fyrir átta efstu sætin í A og B flokkum og opnum flokki í tölti verða veittar 100.000. kr. fyrir fyrsta sæti, 25.000. kr. fyrir annað sæti og 10.000. kr. fyrir þriðja sæti. Fyrirkomulag verður að öðru leiti með svipuðu sniði og í fyrra og verða nánari upplýsingar birtar hér á næstunni. Úrslit og ýmsar aðrar upplýsingar frá því í fyrra má enn þá nálgast á svinavatn-2007.blog.is KeppnisreglurAllar greinar Þrír í hóp í undanrásum Átta í úrslit Úrslit verða riðin strax á eftir forkeppni
Tölt Ein ferð hægt tölt, tvær ferðir hraðabreytingar, ein ferð greitt tölt
B flokkur Ein ferð hægt tölt, ein ferð greitt tölt, ein ferð brokk, ein ferð frjáls
A flokkur Ein ferð brokk, ein ferð tölt frjáls hraði, ein ferð frjáls, ein ferð skeið
Úrslit
Tölt Tvær ferðir á hverju atriði
B flokkur Hægt tölt tvær ferðir, brokk tvær ferðir, greitt tölt tvær ferðir
A flokkur Tvær ferðir tölt frjáls hraði, tvær ferðir brokk, tvær ferðir skeið 26.02.2008 23:22Aðalfundur 2008Minnt er á aðalfundinn í hestamannafélaginu Neista og verður hann haldinn miðvikudagskvöldið 27. febrúar kl 20:00. 25.02.2008 21:44Fjórgangsmót í Reiðhöllinni ArnargerðiFjórgangsmót í Reiðhöllinni Arnargerði Föstudagskvöldið 29.febrúar kl. 20:00 hefst fjórgangsmót í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í flokkum unglinga, áhugamanna og opnum flokki. Skráningu sé lokið á fimmtudagskvöldið á netfanginu [email protected] eða í síma 867-9785 eftir kl. 20:00. Fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests, litur og aldur og upp á hvora hönd riðið er. Fjöldi skráninga ræður hvort röð gangtegunda verður frjáls eða bundin. 22.02.2008 23:23Úrslit í fjórgangi í meistaradeild Norðurlands KS deildinni![]() Fyrsta mót í Meistaradeild Norðurlands KS deildinni var haldið í vikunni í reiðhöllinni að Svaðastöðum en þá var keppt í fjórgangi. Það var snilldarknapinn Sölvi Sigurðarson sem sigraði á Óða Blesa með 7.47. Í öðru sæti varð Bjarni Jónasson á Kommu með 7.27 og í þriðja sæti hafnaði Ólafur Magnússon á Gáska með 7.20. Úrslit í Meistaradeild Norðurlands, KS Deildin 1. Sölvi Sigurðarson Óði-Blesi 7.47 21.02.2008 23:29Um meistaradeild Norðurlands - KS deildinaMeistaradeild Norðurlands - KS-deildin
Bestu knapar Norðurlands saman komnir
Meistaradeild Norðurlands, KS-deildin, rúllar af stað miðvikudagskvöldið 20. febrúar kl: 20:00. Aðal skipuleggjendur mótsins eru þeir Guðmundur Sveinsson, Eyþór Jónasson og Ragnar Pálsson.
Hugmyndin á bak við mótið er að koma á keppni fyrir þá allra bestu á Norðurlandi sem hingað til hafa ekki haft mörg tækifæri til þess að sýna sig og hross sín yfir vetrarmánuðina án þess að leggja í löng og ströng ferðalög. ?Í Meistaradeildinni erum við að stíla upp á að safna saman í eina mótaröð öllum bestu knöpum Norðurlands en það hefur ekki verið gert með markvissum hætti áður. Það verður byrjað á miðvikudagskvöld með keppni fjórgangi og síðan verður þann 12. mars keppt í tölti, 26. mars verður keppt í fimmgang og loks 9. apríl í smala og skeiði, segir Guðmundur. Smali er ný keppnisgrein hér á Norðurlandi en í greininni er sett upp þrautabraut sem reynir á hraða og fimi hests og knapa. Engar kröfur eru gerðar um gangtegundir heldur aðeins að hesturinn fari á sem bestum tíma í gegnum þrautabrautina og það án þess að fella niður hindranir. Hvernig hefur mótinu verið tekið? ?Mjög vel, knapar tala almennt um að þetta sé allri hestamennsku til framdráttar hér á svæðinu og eins eru menn ánægðir með þann stuðning sem KS veitir okkur með því að styrkja deildina peningalega, segir Ragnar sem hefur það ábyrgðarmikla hlutverk að halda utan um fjármál deildarinnar. Hvert kvöld gefur sigurvegara og næstu sætum ákveðin stig sem síðan safnast upp mót eftir mót. Í lokin stendur sá einstaklingur uppi sem sigurvegari sem í heildina hefur hlotið flest stig og hlýtur hann auk þess að vera sigurvegari í Meistaradeild KS, vegleg peningaverðlaun. Eins verða veitt peningaverðlaun fyrir sigurvegara hvers kvölds. Allar fréttir frá deildinni verður að finna í Feyki og eins á Skagafirði.com auk þess sem fréttir frá mótunum verða sendar inn á alla helstu hestamiðla landsins strax að mótum loknum. 21.02.2008 20:11Frá formanni Neista !Nú er komið að aðalfundi í hestamannafélaginu Neista og verður hann haldinn miðvikudagskvöldið 27. febrúar kl 20:00.
Það er ljóst að ég get ekki starfað lengur sem formaður félagsins en ég er fluttur til Reykjavíkur í nokkur ár til að stunda háskólanám. Þessi tvö ár hafa gefið mér mjög mikið, hafa verið skemmtileg og einnig kennt mér mjög margt. Félagsstarfið gengur mjög vel og félagið hefur fullt af góðu og jákvæðu fólki innanborðs. Það hefur stækkað ört síðustu ár og er þar helst að þakka góðu unglingastarfi og alltaf virðast fleiri og fleiri börn og unglingar fara út í þessa hollu íþrótt. Ég vil svo að lokum þakka fyrir mig þessi 2 góðu ár sem ég hef setið sem formaður. Hvet ég félagsmenn til að standa saman og þétt við bakið á hvorum öðrum í framtíðinni og stunda skemmtilegt félagsstarf í hestamannafélaginu Neista.
Þorgils Magnússon formaður 17.02.2008 14:46Myndir frá töltmótinu !
Helga Una Björnsdóttir Samba Frá Miðhópi 6,33 Herdís Einarsdóttir Huldumey frá Grafarkoti 6,17 Tryggvi Björnsson Óratoría Syðri Sandhólum 6,17 Ólafur Magnússon Eðall frá Orrastöðum 5,83 Víðir Kristjánsson Djákni frá Stekkjardal 5,67 vann B úrslit. B-ÚRSLIT. Víðir Kristjánsson Djákni frá Stekkjardal 6,33 Ingunn Reynisdótttir Rakel frá Sigmundarstöðum 6,17 Jóhann Albertsson Tvistur frá Gauksmýri 5,83 Sigríður Lárusdóttir Erla frá Gauksmýri 5,67 Heimir Þór Gleði frá Sveinsstöðum 5,0
Þórólfur Óli Þokki frá Blönduósi 5,67 Steinbjörn Tryggvason spói frá Þorkellshóli 5,33 Hörður Ríkharðsson Knár frá Steinnesi 5,17 Geir Eyjólfsson Kall frá Dalvík 5,0 Ósvald Indriðason Valur frá Höskuldsstöðum 4,17
![]() Unglingaflokkur. Harpa Birgisdóttir Þróttur frá Húsavík 5,67 Rakel Rún Garðarsdóttir Lander frá Bergstöðum 5,50 Elísabet Steinbjörnsdóttir Kremi frá Galtanesi 5,0 Jónína Lilja Pálmadóttir Hending frá Sigmundarst. 4,67 Stefán Logi Grímsson Galdur frá Gilá 4,33 Fríða Marý Halldórsdóttir Krapi 4,17
12.02.2008 17:57Fyrirlestur um frumtamningar - Taka tvöFyrirlestur um frumtamningar - Taka tvö
Fyrirlestur Antons Páls Níelssonar verður annaðkvöld miðvikudaginn 13.02 í reiðhöllinni á Blönduósi. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30. Mætum öll .
Hestamannafélagið Neisti og félag hrossabænda 11.02.2008 23:13*Hestakúnstir.**Hestakúnstir.* Næstkomandi sunnudag, þann 17. febrúar, verður haldið námskeið í Reiðhöllinni Arnargerði. Námskeiðið kallast hestakúnstir og kennari er Tina Niewert. Á námskeiðinu er farið í hvernig hægt er að fá hestinn til að gera ýmsar æfingar sem hann gerir í náttúrunni án þess að vera á baki, t.d. að leggjast, hneigja sig, heilsa og spænska skrefið. Misjafnt er hvað tekst að kenna hestunum en það fer að mestu eftir því hvað þeir eru móttækilegir og námsfúsir. Byrjað verður á bóklegum tíma, síðan er sýnikennsla og þá fá þeir sem koma með hesta að spreyta sig. Áætlað er að hver hópur fái 2svar verklega kennslu. Námskeiðið er opið öllum og mun kosta 2000 kr. Skráning er hjá Sonju í síma 452 7174 / 616 7449 og Jóhönnu í síma 452 4012 / 868 1331 fyrir kl. 19 á laugardagskvöld 11.02.2008 14:40Töltmótið reynt að nýju !Frestaða töltmótið.
Föstudagskvöldið 15. feb. kl. 20:00. verður haldið töltmót í Reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í unglingaflokki, áhugamannaflokki og 1. flokki. Skráningu sé lokið á fimmtudagskvöldið á netfanginu flaga72@simnet .is eða í síma 8679785 eftir kl. 20:00. Staðfesta þarf fyrri skráningar. Fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests, litur og aldur og upp á hvora hönd riðið er. Skráningargjald hjá fullorðnum er kr. 1000 og kr. 500 hjá unglingum. Áhorfendur athugið að það eru komnir nýir áhorfendapallar. 10.02.2008 23:30Umsóknir í afrekskvennasjóð Glitnis og ÍSÍAuglýst er eftir umsóknum í Afrekskvennasjóð Glitnis og ÍSÍ. http://isi.is/?nwr_from_page=true&nwr_more=1365&ib_page=121&iw_language=is_I Framundan er þriðja úthlutun úr Afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ. Til sjóðsins var stofnað með framlagi úr Menningarsjóði Glitnis og tilgangur hans er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Frestur til að skila inn umsóknum fyrir þessa úthlutun rennur út föstudaginn 15. febrúar n.k. Hægt er að nálgast reglugerð um sjóðinn og umsóknareyðublöð hér <http://isi.is/?ib_page=399&iw_language=is_IS> Nánari upplýsingar veitir Örvar Ólafsson, [email protected]. Hægt er að senda umsóknir á rafrænu formi beint til hans. 07.02.2008 23:09Töltmóti frestað !!Töltmótinu frestað Töltmótinu sem fyrirhugað var að halda í Reiðhöllinni í Arnargerði föstudagskvöldið 8. febrúar hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Fyrirhugað er að halda mótið eftir viku en það verður auglýst nánar síðar 06.02.2008 21:19Áhugavert þriggja helga námskeið - Uppbygging kynbóta- og sýningarhrossa fyrir áhugafólk!
Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands vill vekja sérstaka athygli á þessu gagnlega og skemmtilega námskeiði en nokkur pláss eru laus. Hægt er að skrá sig á einstaka helgi sem áheyranda án hests en fá leiðsögn, kennslugögn og veitingar eins og aðrir þátttakendur á námskeiðinu ? hver helgi kostar þá 12.000.- kr P.s. Þeir sem eru á biðlista á öðrum námskeiðum ættu að kíkja á lýsingu þessa námskeiðs. Minnum einnig á möguleikana er felast í Starfsmenntasjóði bænda til niðurgreiðslu á námskeiðsgjöldum (www.bondi.is).
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is