Færslur: 2008 Maí28.05.2008 22:46Úrtaka fyrir Landsmót. Skrifað af SM 28.05.2008 21:01Barnamót 2008Fyrirhugað er að halda barnamót neista fimmtudaginn 12.júní ef veður ![]() Æskulýðsnefnd Neista Skrifað af SM 28.05.2008 20:27Reiðskólinn útskriftReiðskólinn útskrift Útskrift yngri hópa reiðskólans verður þriðjudaginn 03. júní 2008 Skrifað af SM 26.05.2008 09:29Fundur með bæjarstjórn um hagsmunamál hestamannaTil hestamanna og annarra sem leigja beitiland og ræktunarland af Blönduósbæ - fundur með bæjarstjórn. Þriðjudagskvöldið 27. maí kl. 20:00 verður fundur í Reiðhöllinni Arnargerði með bæjarstjórn Blönduóssbæjar . Á dagskrá verður umræða um leigugjald á landi og fyrirkomulag þeirra mála almennt. Einnig verður rætt um önnur hagsmunamál hestamanna. Fjölmennum og sýnum áhuga á hagsmunamálum okkar.
Hesteigendafélagið. Skrifað af SM 22.05.2008 22:59Upplýsingar fyrir hestamannafélög og knapaUpplýsingar fyrir hestamannafélög og knapa
Upplýsingar til keppenda - fyrirkomulag - smella hér Yfirlitsmynd af aðstöðu knapa og hrossa - smella hér Teikning af beitarhólfum til að panta - smella hér Panta beitarhólf og athafnasvæði ? smella hér - Beitarhólf og tjaldsvæði keppenda verður afmarkað með rafmagnsgirðingu. Ræktunarbússýningar Skráningareyðublað á ræktunarbússýningu - PDF / Word Val hrossa og keppenda á Landsmót
Ekki er barni, unglingi eða ungmenni heimilt að mæta með fleiri en eitt hross til úrtöku á landsmóti í sínum aldursflokki. Einkunnir í forkeppni skulu ávallt ráða vali hrossa á landsmót en ekki röðun úr úrslitakeppni sé hún viðhöfð. Þá er félögum heimilt að hafa tvær umferðir og gildir þá betri árangur. Hversu mörg hross/knapar frá hestamannafélögunum hafa þátttökurétt á Landsmóti? Fjöldi skráðra félagsmanna í hverju hestamannafélagi fyrir sig segir til um þann fjölda hrossa sem öðlast þátttökurétt á Landmóti. Dæmi: - Hestamannafélag með 1-125 félaga á félagaskrá öðlast rétt til að senda eitt hross í hvern keppnisflokk; þ.e. A og B flokk auk barna-, unglinga- og ungmennaflokk. Hestamannafélög með 126-250 skráða félaga: 2 hross í hverjum flokki. Hestamannafélög með 251-375 skráða félaga: 3 hross í hverjum flokki, osfrv. Miðað er við fjölda skráðra félaga á félagaskrá hestamannafélaga 15. apríl 2008 en þá er síðasti skiladagur ársskýrslu og félagafjölda til ÍSÍ í gegnum skráningarkerfi sem kallast FELIX. Skráning keppenda og hrossa frá hestamannafélögum Landssamband Hestamannafélaga er með lista yfir aðgangsorð allra hestamannafélaganna í MótaFeng og eiga félögin að hafa fengið þau send. Vinsamlegast athugið: Varahesta er ekki hægt að skrá í gegnum þessa slóð, senda þarf upplýsingar um varahesta - hér. Fulltrúar LM og LH sjá um skráningu í tölt og skeiðgreinar. Skráningarfrestur í þær greinar rennur út á miðnætti 16. júní.
Skrifað af SM 22.05.2008 22:50Landsmót hestamanna 2008
Sérstaklega er bent á hnappinn knapar/ræktunarbú undir slóðinni: http://www.landsmot.is/index.php?pid=326 Undir þeirri slóð er að finna allar helstu upplýsingar er lúta að keppnishaldi, s.s. um athafnasvæði og beitarhólf knapa, val hrossa og keppenda á Landsmót og síðast en ekki síst skráning keppenda og hrossa frá hestamannafélögunum í Sportfeng(var Mótafengur) undir slóðinni: www.sportfengur.com. Eins og fram kemur á heimasíðu Landsmóts biðjum við ykkur vinsamlegast um að senda okkur póst yfir skráningarnar á netfangið: [email protected] eftir að skráð hefur verið í Sportfenginn. Mikið og gott starf hefur verið unnið og er í vinnslu af hálfu rekstraraðila svæðisins, Rangárbakka ehf. sem og félagsins sem hefur umsjón með byggingu Rangárhallarinnar. Afar gott samstarf er á milli LM 2008 og beggja þessara félaga. Mótsvæðið er að verða hið glæsilegasta og mun mótstjórn Landsmóts einnig leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem veglegast og hestamennskunni í landinu til sóma. Mótstjórn LM 2008 hefur verið starfandi frá hausti 2007. Að venju er dagskráin fjölbreytt og með nokkuð hefðbundnu sniði. Mótstjórn afgreiddi dagskrá keppnishluta þegar á haustdögum (með fyrirvara um breytingar) og er hana jafnframt að finna á heimasíðu Landsmóts sem og viðauki við gögn þessi. Landsmót ehf. og LH gerðu leigusamning um svæðið fyrir um ári síðan og nýverið undirritaði framkvæmdastjóri LM 2008 leigusamning vegna notkunar á reiðhöllinni sem er í heild um 2.500 fm. Ætlunin er að í reiðhöllinni verði blönduð starfsemi; m.a. verslanir, veitingasala, netkaffi og síðast en ekki síst Hestatorgið sem mun standa að fræðslu og kynningu íslenska hestsins á mótinu. Á planinu beggja vegna brekknanna verða markaðstjöld og stórt skemmti- og veitingatjald. Skemmtanahald og dansleikir standa einungis til 01:00 á kvöldin og er það liður í að mótstórn LM 2008 er að leggja ríkulega áherslu á Landsmót sem fjölskylduhátíð. Mótsvæðið verður girt af og rýmt að nóttu til og hreinsað. Ætlunin er að hafa veglegt barnaleiksvæði með gæslu þar sem börnunum verður boðið upp á fjölbreytta leiki, karókíkeppnir, skemmtiatriði og afþreyingu og fl. Ráðgert er að hafa þar húsdýr og gefa börnunum m.a. kost á að teymt sé undir þeim. Vonum við að þessari nýjung verði vel tekið af þeim fjölda barna sem sækja mótið. Lagt verður mikið upp úr því að vera með skýra upplýsingamiðlun til áhorfenda m.a. með risaskjái við báða velli. Gefið verður út dagblað mótsins á íslensku og ensku á hverjum degi með helstu niðurstöðum og því sem hæst ber hverju sinni. Þess má einnig geta að í boði eru hjólhýsa-/vagnastæði fyrir 500 bíla og fellihýsi með aðgengi að rafmagni. Mjög margir hafa verið að nýta sér þessa þjónustu í gegnum netmiðasöluna en þar er einnig hægt að versla og panta sérstök stúkusæti. Með samvinnu LM 2008 og Icelandair með miðasölu á netinu er vonast til að komið verði í veg fyrir þá miklu örtröð sem myndast hefur við inngangshlið. Þess ber einnig að geta að Síminn hefur gert samstarfssamning við LM 2008 og áætlar að leggja ljósleiðara inn á svæðið. Þar með eru tæknimálin mun betur tryggð enda skipta þau gríðarlega miklu máli þegar verið er að vinna með allar tölur, einkunnir osfrv. Fljótlega verður veggspjöldum dreift til hestamannafélaganna í pósti og eru fulltrúar vinsamlegast beðnir um að koma því við að þau verði hengd upp við fjölfarna staði í þeirra heimabyggð sem og í hesthúsahverfum. Það er von undirritaðrar að góð stemning sé fyrir þátttöku félaga ykkar á mótinu og að hestamenn fjölmenni á 18. Landsmót hestamanna á Hellu í sumar. Þess má geta að áætlað er að halda knapafund sunnudaginn 29. júní og verður það fyrirkomulag kynnt nánar. Með vinsemd og virðingu, Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Skrifað af SM 20.05.2008 18:31Að sitja á eistunum20.5.2008 13:23 Að sitja á eistunum Pistill eftir Jónas Kristjánsson www.jonas.is
Ríka, þýzka pabba vandaði litla og sæta hesta til að halda litlu og sætu dætrunum sínum frá gröðum strákum. Dæturnar hölluðu sér þá að fullum tamningamönnum og tvöfölduðu ógæfuna. Úr afkomendum hesta Gengis Kan var svo búinn til hastur, samanþjappaður hringvallarhestur 18.05.2008 22:53Norðurlandamót í hestaíþróttumNorðurlandamót í hestaíþróttum í Seljord í Noregi 4. ? 10. ágúst.
Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 4. ? 10. ágúst í Seljord í Noregi á sama stað og heimsmeistaramótið í hestaíþróttum var haldið árið 1997. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum í aldurflokkunum: 13 ? 15 ára (15 ára á árinu) Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn. Í umsókninni þarf að koma fram: Nafn, heimilisfang, sími, aldur og netfang. Við hvetjum sem flesta til að sækja um en reynsla af þátttöku í svo stóru móti er frábært veganesti fyrir alla sem eru að spreyta sig á keppnisbrautinni. Þetta er ekki síður nauðsynleg reynsla fyrir þá sem stefna á að keppa á heimsmeistaramótinu sumarið 2009. Umsóknum þarf að skila inn til Landssambands hestamannafélaga til og með 20. maí, hvort heldur sem bréflega, með tölvupósti [email protected] eða á faxi 514 4031. Allar upplýsingar um mótið er hægt að fá á skrifstofu LH í síma 514 4030. Skrifað af SM 18.05.2008 20:50Ótitlað
Skrifað af HBE 01.05.2008 23:30Vorferð NeistaVorferð Neista ! Stefnt er að því að fara í hina árlegu vorferð Neista laugardaginn 10.maí nk. Farið verður frá reiðhöllinni Arnargerði kl.16.00. Óskað er eftir því að fólk skrái sig fyrir 8.maí nk. hjá Eddu í síma 848-3354 eða með því að svara hér fyrir neðan. Verði verður stillt í hóf og í anda þjóðarsáttar ![]() Skrifað af HBE 01.05.2008 23:12Stóðhestar í Húnaþingi sumarið 2008Stóðhestar í Húnaþingi sumarið 2008
Akkur frá Brautarholti 10v. rauðstj. IS-1998-137-637, F: Galsi frá Sauðárkróki Blönduós - fram að landsmóti Uppl: Tryggvi 898-1057
Ármann frá Hrafnsstöðum 5v. grár IS-2003-165-059, F: Gustur frá Hóli Blönduós - húsnotkun Uppl: Tryggvi 898-1057
Feldur frá Hæli 4v. grár/brúnn IS-2004-156-470, F: Huginn frá Haga A-Hún - sennilega eftir landsmót Uppl: Gunnar 895-4365, Magnús 897-3486
Kjerúlf frá Kollaleiru 5v. jarpur IS-2003-176-452, F: Taktur frá Tjarnarlandi Torfalækur - eftir landsmót Uppl: Tryggvi 898-1057; Jonni 898-9402
Óðinn frá Bakkakoti 4v. jarpur IS-2004-186-183, F: Sær frá Bakkakoti Hæli - sennilega eftir landsmót Uppl: Jón Kristófer 898-9402
Smári frá Skagaströnd 15v. jarpur IS-1993-156-910, F: Safír frá Viðvík Þingeyrar - fyrra tímabil, frá 20. júní Uppl: Gunnar 895-4365, Magnús 897-3486
Tinni frá Kjarri 4v. brúnstjörn. IS-2004-187-001, F: Sjóli frá Dalbæ Þingeyrar - sennílega eftir landsmót Uppl: Gunnar 895-4365, Helga 863-4717
Aðall frá Nýjabæ 9v. jarpur IS-1999-135-519, F: Adam frá Meðalfelli V-Hún - seinna tímabil frá 20 júlí Uppl: Pálmi Geir 849-0752, 451-2830
Álfur frá Selfossi 6v. rauðskjóttur IS-2002-187-662, F: Orri frá Þúfu Grafarkot - eftir landsmót Uppl: Indriði 860-2056 , Herdís 848-8320
Blær frá Hesti 10v. brúnn IS-1998-135-588, F: Gustur frá Hóli Stóra Ásgeirsá - 15 maí ? 15 júní Uppl: Elías 894-9019
Grettir frá Grafarkoti 6v. brúnn IS-2002-155-416, F: Dynur frá Hvammi Grafarkot - allt sumarið Uppl: Indriði 860-2056 , Herdís 848-8320
Roði frá Múla 16v. rauður IS-1992-155-490, F: Orri frá Þúfu Múli - eftir landsmót Uppl: Sæþór 897-5315
Ræll frá Gauksmýri 5v. rauðstjörn. IS-2003-155-501, F: Galsi frá Sauðárkróki Gauksmýri Uppl: Jóhann 869-7992
Vökull frá Síðu 7v. rauðtvístjörn IS-2001-155-265, F: Adam frá Meðalfelli Þorkelshóll ? fyrra tímabil, frá 20. júní Uppl: Júlíus Guðni 865-8177, 451-2433
Samtök Hrossabænda í Húnaþingi Skrifað af HBE 01.05.2008 20:30Fundur um beitilandTil hestamanna og annarra sem leigja beitiland og ræktunarland af Blönduósbæ. Mánudagskvöldið 5. maí kl. 20:00 verður fundur í Reiðhöllinni Arnargerði. Á dagskrá verður umræða um leigugjald á landi og fyrirkomulag þeirra mála almennt. Einnig verður rætt um önnur hagsmunamál hestamanna. Hesteigendafélagið. Skrifað af HBE 01.05.2008 17:00Æskan og hesturinnÆskan og hesturinn Stórsýning barna úr hestamannafélögum í Húnavatnssýslum , Skagafirði og nágrannabyggðum og Neskaupsstað verður haldin í Reiðhöllinni á Sauðárkróki. Þess má geta að um 40 börn úr Hestamannafélaginu Neista ásamt hestum sínum taka þátt í þessari sýningu Verður Laugardaginn 3.maí Fyrri sýningin kl:13 og seinni kl:16. Aðgangur er ókeypis ? ALLIR VELKOMNIR Veitingar eru seldar í anddyri reiðhallarinnar Sérstakur gestur sýningarinnar er: EYÞÓR úr bandinu hans Bubba ásamt afa sínum Stefáni Friðgeirssyni og hestinum Degi frá Strandarhöfða Skrifað af HBE
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is