Færslur: 2008 Ágúst21.08.2008 20:11Landbúnaðarsýningin á Hellu 22.-24. ágústVönduð og fjölbreytt dagskrá verður í boði á landbúnaðarsýningu sem haldin verður á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22.-24. ágúst næstkomandi í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands. Landbúnaðarsýningin er þróunar- og tæknisýning jafnframt því sem hún kynnir hlutverk og stöðu íslensks landbúnaðar í þjóðfélaginu. Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar, hátt tæknistig og þá miklu þekkingu sem er að finna innan greinarinnar. Sýningin verður hvort tveggja í senn metnaðarfull fagsýning fyrir landbúnaðinn og tengdar greinar og neytendasýning fyrir almenning. Þar verða sýnd tæki og vélar, afurðir og búfé auk þess sem kynntar verða vörur og þjónusta sem tengjast landbúnaðinum. Fjölmörg búgreinafélög taka þátt í sýningunni, þjónustuaðilar landbúnaðarins, seljendur rekstrarvara, skólar og stofnanir. Alls hafa um 70 sýnendur skráð sig til leiks. Hin árlega héraðshátíð Töðugjöld á Hellu er hluti af dagskrá sýningarinnar og verður öll Hella klædd í hátíðarbúning af því tilefni. Lögð verður áhersla á skemmtilega dagskrá fyrir börnin og þeim gefinn kostur á að komast í snertingu við sveitalífið í starfi og leik. Þannig geta þau t.d. brugðið sér á hestbak, veitt silung í tjörn, klappað dýrunum, spreytt sig á gömlu góðu útileikjunum og tekið þátt í listasmiðju. Af nógu verður einnig að taka fyrir fullorðna fólkið, sem getur bragðað á gómsætum íslenskum landbúnaðarafurðum, skoðað landnámshænur, fylgst með rúningi, ullarvinnslu, smalahundasýningu, gangtegundasýningu, kúasýningu og kynbótadómum. Einnig má kynna sér nýjustu tækin og tólin, kornrækt, svínarækt, loðdýrarækt, sauðfjárrækt, garðyrkju, blómaskreytingar, býflugnarækt, landgræðslu og íslenska búfjárliti, svo nokkur dæmi séu nefnd. Fyrir þá keppnisglöðu má svo benda á dráttarvélaleikni, hrútaþukl, jurtagreiningu, töltkeppni og sveitafitness. Sýningin teygir anga sína út fyrir aðalsýningarsvæðið, því kúabændur á bæjunum Bjólu, Helluvaði og Selalæk í Rangárþingi ytra bjóða gesti velkomna til að kynna sér bústörfin á vettvangi. Einnig býður hrossaræktarbúið Fet gesti sýningarinnar velkomna. Kvöldvökur með fjölbreyttum skemmtiatriðum verða á dagskrá eftir að sýningu lýkur á föstudags- og laugardagskvöldinu. Meðal þeirra sem koma fram eru Álftagerðisbræður, Hundur í óskilum, söngvararnir Gísli Stefánsson og Maríanna Másdóttir, Ingó og Veðurguðirnir, að ógleymdum þeim Guðna Ágústssyni alþingismanni og Gísla Einarssyni fréttamanni. Nánari upplýsingar um dagskrá sýningarinnar er að finna á www.landbunadarsyning.is. Samstarfsaðilar Landbúnaðarsýningarinnar á Hellu 2008 eru Mjólkursamsalan, Kaupþing, Sláturfélag Suðurlands, Bændasamtökin og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Skrifað af SM 21.08.2008 19:40Árangur Íslendinga á NM 2008Árangur Íslendinga á NM 2008
Fjórgangur fullorðinna: 1.sæti Heimir GunnarssonÖr frá Prestbakka Fjórgangur ungmenna: 3.sæti Edda Rún Guðmundsdóttir Sporður frá Höskuldsstöðum Tölt fullorðinna: 1.sæti Heimir GunnarssonÖr frá Prestbakka Tölt ungmenna: 1.sæti Hekla Katarína Kristinsdóttir Gustur frá Kjarri Fimmgangur fullorðinna: 2.sæti Eyjólfur ÞorteinssonEitill frá Vindási Fimmgangur ungmenna: 1.sæti Arnar Bjarki Sigurðsson Snar frá Kjartansstöðum Slaktaumatölt fullorðinna T2: 6.sæti Agnar Snorri Stefánsson Rómur frá Búðardal Slaktaumatölt unglinga og ungmenna T2: 2.sæti Linda AntonsdóttirIsak frá Dirhuvud 100m skeið fullorðinna: 5.sæti Sigurður ÓskarssonKolbeinn frá Þóroddsstöðum 100m skeið unglingar: 3.sæti Ragnheiður Hallgrímsdóttir Júpiter frá Ragnheiðarstöðum Skrifað af SM 21.08.2008 19:2556. Landsþing Landssambands Hestamannafélaga
56. Landsþing Landsþing LH verður haldið dagana 24. og 25. október n.k. í boði hestamannafélagsins Kóps. Tillögur og önnur málefni sem hestamannafélögin óska eftir að tekin verða fyrir á þinginu verða að berast skrifstofu LH í síðasta lagi 29. ágúst n.k. Í lögum LH stendur: "1.2.2 Málefni sem sambandsaðilar óska að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn LH minnst 8 vikum fyrir þingið. Skrifað af SM 21.08.2008 19:17Tilkynning um breytinguSíðsumarssýning kynbótahrossa á Sauðárkróki Tilkynning um breytingu og hefjast kl 08:00. Yfirlitssýning verður fimmtudaginn 28. ágúst og hefst hún kl 08:30. Skrifað af SM 18.08.2008 21:00Neista JakkarNeista Jakkar Jæja loksins eru Neista jakkarnir komnir í hús eftir svolítið ( vesen ![]() á fimmtudagskvöld eða fyrr gegn staðgreiðslu kr: 8000, ( 9300 þeir sem ekki voru með styrktarðila) en hringið þá á undan ykkur svo ég verði heima Kveðja Silla 691-8228 Skrifað af SM 13.08.2008 22:47Hestaferð NeistaHestaferð Neista
Helgina 22.-24. ágúst n.k. verður farið í félagsferð Neista. Áætlunin er að hestarnir verða komnir í Lækjardal fyrir föstudagskvöld, en hægt er að geyma þá þar frá og með fimmtudegi, 21.8. Lagt verður af stað frá Lækjardal föstudagskvöld kl. 18.30 og riðið í Þverá. Daginn eftir verður farið frá Þverá í gegnum Vatnadalinn í Skagasel þar sem við fáum okkur kjötsúpu og gistum. Á sunnudaginn er riðið yfir Skagaheiðina á Skagaströnd og áleiðis á Blönduós. Þeir sem vilja ekki fara alla leið heim þann dag hafa kost á að geyma hestana aftur í Lækjardal til mánudags. Ferðin er öllum opin en verðið á mann er kr. 5500.- fyrir félagsmenn en kr. 6500.- fyrir utanfélagsmenn. Miðað er við Skráningu lýkur á þriðjudagskvöld 19.ágúst n.k. hjá
Angelu, s. 452 4323, 869 5923 Evu, s. 694 8999 Ragnheiði, s. 452 4128
Skrifað af SM 03.08.2008 00:10Galsi frá Sauðárkróki Galsi frá Sauðárkróki er núna til afnota á Syðri Hofdölum í Skagafirði
Áhugasamir hafi samband við Magnús í Steinnesi - 897-3486
Skrifað af SM 03.08.2008 00:08Opið íþróttamót ÞytsOpið íþróttamót Þyts 9.-10. ágúst 2008
Keppnisgreinar eru gæðingaskeið-100 m skeið-slaktaumatölt t2 fimmgangur 1. og 2. flokkur, fjórgangur 1. og 2. flokkur tölt t1 1. og 2. flokkur- unglingar og ungmenni tölt og fjórgangur-börn tölt og fjórgangur pollar.Fyrsta skráning kr. 2.500, síðan kr. 1.000 næstu skráningar Mótið hefst kl 9:00 laugardag og sunnudag. Skráning hjá Gerði Rósu; [email protected] fyrir kl. 24:00 miðvikudaginn 6. ágúst, ekki verður tekið á móti skráningum eftir þann tíma.
Mótanefnd.
Skrifað af SM
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is