Færslur: 2009 Janúar11.01.2009 12:18Knapamerki og kaffimorgnarNú er vetrarstarf Neista að fara á fullt skrið.
Sibba er byrjuð með 4 unglinga í knapamerki 3. Tímar þar eru heldur fleiri en í 1 og 2 og því ekki seinna vænna en að byrja. Fyrsti kaffimorguninn var í gærmorgun í Reiðhöllinni. Nokkrir sáu sért fært að mæta þótt veðrið væri ekki alveg það besta, allavega ekki útreiðaveður og því gott að sitja inni og spjalla yfir kaffi og með því. Afar notalegt Ráðgert er að vera með kaffi á hverjum laugardagsmorgni í vetur frá 9.30 til 11.30. Þeir sem hafa áhuga á að sjá um kaffimorgunn hafi samband á [email protected] Góður hópur í góðu spjalli 06.01.2009 13:15Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga. / KaffimorgnarKrakkar Skrifað af sm 05.01.2009 14:24FEIF Youth Camp 2009
FEIF Youth Camp 2009
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp sem haldinn verður í Bandaríkjunum dagana 17. - 24. júlí 2009. Búðirnar verða haldnar í Wisconsin, í um 2 klst. fjarlægð frá Chigaco á búgarði sem heitir Winterhorse farm.
Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið; farið verður í reiðtúr, indíanar og kúrekar koma í heimsókn, bátaferð, farið í vatnaskemmtigarð og jafnvel í smá verslunartúr.
Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 13 - 17 ára, á árinu, og verður gerð krafa um að þeir hafi einhverja reynslu í hestamennsku og geti gert sig skiljanleg á ensku.
Þátttökugjald er 530 - 550 ? og hefur hvert land rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 20. janúar 2009. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.
Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.
Jólakveðja frá Æskulýðsnefnd Landssambandsins Skrifað af sm 02.01.2009 09:27Kveðja frá LHENDURSKINSMERKIN Ágætu hestamenn, nú er sá tími að skyggni er ekki alltaf sem best og myrkur skellur á fyrr en varir. Viljum við minna alla á að taka fram einfaldasta og auðveldasta öryggistæki sem við eigum - ENDURSKINSMERKIN. Kveðja frá LH Ofangreint birtist á vef LH og á að sjálfsögðu við okkur eins og alla hina. Skrifað af sm
Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is