Færslur: 2009 Júlí29.07.2009 17:45Tryggvi Björnsson og Grásteinn fara ekki á HM09Grásteinn frá Brekku hefur forfallast vegna
meiðsla, virðist sem svo að hann hafi fengið smávægilegt sár á framfót,
klárinn var í hryssum þegar slysið átti sér stað. Í stað Grásteins fer
Erlingur Erlingsson á Bjarma frá Lundum ll en hann stóð annar á eftir
Grásteini á Fjórðungsmóti Vesturlands. Skrifað af selma 23.07.2009 17:37Æskulýðsmót NorðurlandsÆskulýðsmót Norðurlands
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. Skrifað af selma 22.07.2009 09:33Tryggvi Björnsson valinn í landslið Íslands í hestaíþróttumEinar Öder Magnússon landsliðseinvaldur hefur tilkynnt landslið Íslands í hestaíþróttum sem keppir á Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins í Sviss dagana 3.-9. ágúst. Liðið er skipað 19 einstaklingum og þar af eru 4 núverandi heimsmeistarar sem öðlast sjálfkrafa keppnisrétt og eiga þar með tækifæri á að verja titla sína. Liðið er þannig skipað: Íþróttaknapar Jóhann Skúlason, núverandi heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum, keppir á Hvini frá Holtsmúla. Bergþór Eggertsson, núverandi heimsmeistari í 250m skeiði og fljúgandi skeiði 100m, keppir á Lótusi frá Aldenghoor. Þórarinn Eymundsson, núverandi heimsmeistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinum, keppir á Krafti frá Bringu. Sigursteinn Sumarliðason, núverandi heimsmeistari í gæðingaskeiði, keppir á skeiðhryssunni Ester frá Hólum. Snorri Dal keppir á Oddi frá Hvolsvelli. Daníel Jónsson keppir á Tóni frá Ólafsbergi. Þorvaldur Árni Þorvaldsson keppir á Mola frá Vindási. Sigurður Sigurðarson keppir á Herði frá Eskiholti. Erlingur Ingvarsson keppir á Mætti frá Torfunesi. Haukur Tryggvason keppir á Baltasar from Freyelhof. Rúna Einarsdóttir-Zingsheim keppir Frey vom Nordsternhof. Linda Rún Pétursdóttir keppir á Erni frá Arnarsstöðum. Valdimar Bergstað keppir á Orion frá Lækjarbotnum. Teitur Árnason keppir á Glað frá Brattholti. Kynbótaknapar Tryggvi Björnsson sýnir Grástein frá Brekku í kynbótadómi í flokki 7v og eldri stóðhesta. Þórður Þorgeirsson sýnir Kjarna frá Auðsholtshjáleigu í kynbótadómi í flokki 6v. stóðhesta. Guðmundur Björgvinsson sýnir Sæfara frá Hákoti í kynbótadómi í flokki 5v. stóðhesta. Gunnar Hafdal sýnir Þrumu frá Glæsibæ 2 í kynbótadómi í flokki 7v og eldri hryssna. Jóhann Skúlason sýnir Gerplu frá Blesastöðum 1a í kynbótadómi í flokki 6v hryssna. Erlingur Erlingsson sýnir Stakkavík frá Feti í kynbótadómi í flokki 5v hryssna. Landsliðseinvaldi til að aðstoðar eru þeir Anton Páll Níelsson og Sigurður Vignir Matthíasson. Dýralæknir íslenska landsliðsins er Susanne Braun. Líkt og landsliðseinvaldur greindi frá í dag er hann kynnti liðið er hér um að ræða gríðarsterka og keppnisreynda einstaklinga sem mikils er vænst af. Heimild: www.lhhestar.is Skrifað af selma 21.07.2009 20:32Barna- og unglingamót FRESTAÐBarna- og unglingamót æskulýðsnefndar Neista sem vera átti á Blönduósvelli 25. júlí er frestað til 15. ágúst nk. Skrifað af selma 21.07.2009 20:22Fleri myndir frá fánareiðElín Jónsdóttir var svo vinsamleg að senda myndir af fánareiðinni sem búið er að setja inn. Færum við henni bestu þakkir fyrir. Nokkrar myndir voru teknar af huna.is og settar í safnið og einnig tvær myndir frá Jóni Sig. Þökkum einnig fyrir þær. Skrifað af selma 18.07.2009 22:35Setning HúnavökuÞað var flottur hópur Neistafélaga sem reið frá Arnargerði niður á torg þar sem setning Húnavöku sem og önnur fjölskyldudagskrá fór fram í dag. Fyrir hópnum fóru fánaberarnir Harpa, Karen og Stefán en á eftir þeim komu um 25 manns, börn og fullorðnir. Með í för voru einnig þeir Arnar Þór bæjarstjóri og Valgarður forseti bæjarstjórnar en bæjarstjórinn setti svo hátíðna þegar niður á torg var komið. Ferðin gekk vel og stilltu knapar og hestar sér upp á torginu, hátiðin var sett og síðan var Árbrautin riðin til norðurs og Húnabrautin til baka og aftur upp í Reiðhöll. Frábærlega skemmtilegt og flott og fengu hestar og menn, þó aðalega hestar, þónokkra athygli gesta þar sem þeir stóðu á meðan hátíðn var sett. ![]() Myndir eru komnar í albúm en ef einhver lumar á skemmtilegum myndum sem setja má hér inn þá endilega senda þær á [email protected] Skrifað af selma 06.07.2009 23:35Uppskeruhátíð hjá Knapamerki 1, 2 og 3Æskulýðsnefndin
hélt uppskeruhátíð fyrir krakkana í Knapamerkjum 1, 2 og 3 sunnudagskvöldið 5. júlí þegar Fjórðungsmótsfarar voru rétt komnir heim eftir skemmtilega ferð á FM.
Sibba og Sandra veittu þeim viðurkenningarskjal og einkunnir úr Knapamerkjunum. Einnig fengu þau Henson peysu merkta Neista og eldrauðan poka frá N1. Hér er hópurinn með Sibbu og Söndru en eitthvað vantaði af krökkum enda ekki hægt að ætlast til að allir séu heima á sunnudagskvöldi í júlí ![]() ![]() Þökkum þeim Sibbu og Söndru fyrir frábæra kennslu og krökkunum fyrir góða ástundun og skemmtilegt starf í vetur. Hlökkum til að sjá þau öll, bæði yngri og eldri á námskeiðum næsta vetur og vonandi Sibbu og Söndru að kenna ![]() Myndir komnar í albúm. Skrifað af selma 06.07.2009 23:11Unglingarnir okkar á FjórðungsmótiUnglingarnir okkar, þau Aron Orri, Agnar Logi, Elín Hulda, Harpa og Karen Ósk höfðu í nógu að snúast á Fjórðungsmóti og stóðu sig frábærlega á allan hátt. Það var ekki nóg að þau væru að keppa heldur tóku þau þátt í fánareið fyrir hönd félagsins og var þar afar glæsilegur hópur á ferð. Elín Hulda var reyndar að keppa í úrslitum daginn eftir á Móheiði og tók því ekki þátt í fánareiðinni en stóð sig frábærlega vel í úrslitum og varð 4. eins og áður hefur komið fram. ![]() Karen, Aron, Harpa og Agnar Framkvæmdanefnd Fjórðungsmótsins vildi einnig að aðildarfélögin sendu 2-3 einstaklinga til að veita verðlaun á mótinu og stjórn Neista kom að máli við þessar hressu stelpur og þær voru sko meira en til í það. Frábærlega jákvæðar og skemmtilegar og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir frábærlega vel unnin störf, bæði fyrir fánareið og verðlaunaveitingar. Flottur hópur sem við erum stolt af. ![]() Elín, Harpa og Karen Eiríkur Ingi sendi okkur (líka þessar) myndir sem voru settar í myndaalbúm og færum við honum bestu þakkir fyrir. Gaman að eiga myndir af okkar fólki á Fjórðungsmóti. Skrifað af selma 05.07.2009 22:51Afburða árangur Húnvetninga á Fjórðungsmóti á Kaldármelum.Jóna Fanney Friðriksdóttir skrifar: Á Fjórðungsmóti hestamanna sem haldið var á Kaldármelum á Snæfellsnesi dagana 1.-5. júlí komu fram um 350 hross úr 16 hestamannafélögum. Hátt í 3.000 manns sóttu mótið, þótti það afar vel heppnað og fór fram í blíðskaparveðri. Húnvetnsk hross og knapar stóðu sig afar vel á Fjórðungsmótinu. Fjöldi efnilegra barna,unglinga og ungmenna úr Húnaþingi sýndu að þar eru knapar framtíðarinnar í hestamennsku á Íslandi á ferð. Þar var prúðmennska og falleg reiðmennska í fyrirrúmi. Helga Una Björnsdóttir sýndi frábæra frammistöðu í flokki ungmenna og sigraði sinn flokk á Karitas frá Kommu með einkunnina 8,57. Á mótinu hlaut Helga Una einnig reiðmenntunarverðlaun Félags tamningamanna fyrir glæsilegan árangur. Helga Una er afar efnilegur knapi sem á bjarta framtíð fyrir sér. Annar efnilegur knapi, Elín Hulda Harðardóttir, keppti í A úrslitum í flokki unglinga á hryssunni Móheiði frá Helguhvammi II og lenti hún í fjórða sæti með einkunnina 8,33. Fríða Marý Halldórsdóttir sýndi frábæra takta á Sóma frá Böðvarshólum í unglingatöltinu og eftir úrslit voru þau hnífjöfn hún og Konráð Axel Gylfason á Mósarti frá Leysingjastöðum II. Það var því riðinn bráðabani og lenti Fríða Marý í öðru sæti eftir bráðabanann. Knöpum í fullorðinsflokki gekk einnig vel á Fjórðungsmóti. Í B flokki gæðinga náðu þeir félagar Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti fjórða sætinu með einkunnina 8,69. Gáski frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon sýndu einnig góða takta og lentu í fimmta sæti með einkunnina 8,61 í B flokki gæðinga og Sindri frá Leysingjastöðum II og Ísólfur Líndal Þórisson vermdu áttunda sætið með 8,34 í einkunn í sama flokki. Tryggvi Björnsson hafði í nógu að snúast á Fjórðungsmóti og sýndi enn og sannaði að þar er hörku reiðmaður á ferð. Tryggvi sýndi fjölda afburða hrossa, þ.á.m. glæsigripinn Grástein frá Brekku sem hlaut hæstu einkunn í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á Fjórðungsmóti með einkunnina 8,54.
Í þriðja sæti í flokki 7 vetra stóðhesta og eldri var einnig Húnvetningur á ferð, Grettir frá Grafarkoti og var það Herdís Einarsdóttir sem sýndi Gretti. Í flokki 5 vetra stóðhesta stóð efstur afburðagæðingurinn Kiljan frá Steinnesi með 8,59 í einkunn. Var hann ákaft hylltur af áhorfendum úr brekkunni. Steinnesbóndinn, Magnús Jósefsson gerði það einnig gott í 4 vetra flokki stóðhesta og gæðingurinn hans Dofri frá Steinnesi lenti í öðru sæti í þeim flokki.
Ræktunarbúið Höfðabakki í Húnþingi vestra sem einnig tók þátt í ræktunarbússýningunni sýndi einnig glæsihross sín. Þar eru afar eftirtektarverð hross á ferð og brekkan lét vel í sér heyra þegar Höfðabakkahrossin riðu um völlinn. Það verður spennandi að fylgjast með hrossunum frá Höfðabakka og Steinnesi á næstunni. Fjöldi annarra knapa en hér eru upptalin sýndu glæsihross á Fjórðungsmótinu og viðhöfðu fallega reiðmennsku og voru okkur til mikils sóma. Húnvetningar mega vera afar stoltir af sýnu fólki eftir árangur þeirra á Fjórðungsmótinu á Kaldármelum 2009. Ég óska þátttakendum innilega til hamingju með árangurinn og hlakka til að fylgjast áfram með knöpum og hrossum úr Húnaþingi í náinni framtíð.
Skrifað af selma 04.07.2009 22:02Til hamingju SteinnesRæktunarbú FM: Glæsileg tilþrif og afburðahross frá SteinnesiFimmtán manna hópur undir handleiðslu Ágústar Sigurðssonar völdu ræktunarbú Fjórðungsmóts 2009. Var hópurinn einróma um að ræktunarbúið Steinnes yrði fyrir valinu. Mörg góð ræktunarbú tóku þátt í sýningunni og allar voru sýningarnar skemmtilegar og kröftugar. Glæsilegir gæðingar frá öllum ræktunarbúunum sýndu góð tilþrif. Í hópnum frá Steinnesi var engan veikan blett að finna. Þar voru tómir snillingar og afrekshross á ferð, enda fagnaði brekkan ákaft þegar hópurinn reið um völlinn. ![]() Kiljan frá Steinnesi, einn gæðinganna sem tók þátt í sýningu Steinneshrossanna Skrifað af selma 04.07.2009 11:22Djásn frá Hnjúki þriðjaDjásn frá Hnjúki er 3. í flokki 7 vetra hryssna og eldri með einkunina 8,22 Ólga frá Steinnesi er 10. í flokki 5 vetra hryssna með einkunina 7,98 Stefna frá Sauðanesi er 11. í flokki 5 vetra hryssna með einkunina 7,93 Skrifað af selma 04.07.2009 11:03Elín Hulda fjóðra í unglingaflokknumÍ morgun var keppt til úrslita í unglingaflokki og þar stóð Elín Hulda sig frábærlega, hún kom inn 7. úr forkeppni en gerði sér lítið fyrir og náði 4. sætinu með einkunina 8,33 sem er alveg frábært. Innilega til hamingju með það Elín Hulda ![]() Elín Hulda og Móheiður á Landsmóti 2008 Skrifað af selma 02.07.2009 20:02Gáski frá Sveinsstöðum vann B úrslit í B flokki eftir hörkuspennandi viðureignB úrslitum í B flokki gæðinga lauk rétt í þessu eftir hörkuspennandi keppni á milli tvíeykisins Gáska frá
Sveinsstöðum og Ólafs Magnússonar annars vegar og Flygils frá Vestur-Leirárgörðum og Marteini Njálssyni hins vegar. Gáski og
Ólafur höfðu betur í viðureigninni og luku keppni með einkunnina 8,73.
Sæti Keppandi 1 Gáski frá Sveinsstöðum / Ólafur Magnússon 8,73 2 Flygill frá Vestri-Leirárgörðum / Marteinn Njálsson 8,55 3 Hrókur frá Breiðholti / Sigurður Sigurðarson 8,50 4 Happadís frá Stangarholti / Mette Mannseth 8,39 5 Gustur frá Stykkishólmi / Siguroddur Pétursson 8,37 6 Ósk frá Þingnesi / Eyjólfur Þorsteinsson 8,34 7 Leiftri frá Lundum II / Marjolijn Tiepen 8,33 8 Ábóti frá Vatnsleysu / Snorri Dal 8,30 02.07.2009 18:34Kiljan og Dofri frá SteinnesiFordómar í 5 vetra flokki stóðhesta voru í dag og ber mönnum saman um að í þeim flokki sé að finna hvern glæsigripinn á
fætur öðrum. Efstur er Kiljan frá Steinnesi og hlaut hann 8,59 í einkunn. Á eftir honum fylgir Orrasonurinn Uggi frá Bergi með
aðaleinkunn 8,45. Þriðja sætið og með einkunnina 8,27 er Möttull frá Torfunesi.
Hér má finna listann og eins og sjá má eru þarna afar áhugaverðir stóðhestar á ferð. Dómar liggja einnig fyrir í 4 ja vetra flokki stóðhesta í forkeppni á Fjórðungsmóti. Efstur er Asi frá Lundum II með 8,41 í aðaleinkunn. Næstur í dómi er Váli frá Eystra-Súlunesi I með 8,15 í einkunn og Dofri frá Steinnesi með einkuninna 8,13 er í því þriðja. Skrifað af selma 01.07.2009 19:40Sindri og GáskiEftir forkeppni í B-flokki á Fjórðungsmóti eru þeir Sindri frá Leysingjastöðum II og Ísólfur Líndal Þórisson í 4. sæti með einkunina 8,41 og Gáski frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon í 8. sæti með einkunina 8,38. Gaman verður að fylgjast með þeim í úrslitum en úrslit úr forkeppni má sjá hér. Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is