Færslur: 2009 September28.09.2009 22:13Brotist inn í hesthús á BlönduósiBrotist var inn í hesthús á Blönduósi um helgina og stolið þaðan hnakki og þremur beislum að verðmæti á fimmtahundrað þúsund. Að sögð eiganda hesthússins, Skarphéðins Einarssonar, eru innbrot í hesthús á Blönduósi að verða árlegur viðburður helgina sem Laufskálaréttin fer fram. -Ég varð fyrir því fyrir tveimur árum að farið var inn í húsið hjá mér þessa helgi og járningargræjunum mínum var stolið. Núna tóku þeir hnakk og þrjú beisli. Það voru fjórir hnakkar í húsinu en aðeins var tekinn sá sem einhver verðmæti voru í. Það lítur því út fyrir að þarna séu hestamenn sem eiga leið í gegn að stela frá öðrum hestamönnum. Ég veit til þess að hestamenn á Hvammstanga hafa líka verið að lenda í þessu. Þetta er mikið tjón fyrir okkur og sárt til þess að vita að þarna séu hestamenn á ferð, segir Skarphéðinn. Skarphéðinn segist hafa tekið eftir þjófnaðinum í gær og þá hafi hann látið aðra hesthúseigendur vita um innbrotið en ekki hafi orðið vart við að stolið hafi verið úr fleiri húsum. -Ég mun ekki láta taka mig svona í bólinu aftur og er ákveðin í því að tæma allt úr húsinu fyrir næstu Laufskálaréttarhelgi. heimild: www.feykir.is Skrifað af selma 24.09.2009 22:19Hrossasmölun og stóðréttir í VíðidalKrónprisessa stóðréttanna - Víðidalstungurétt
Kl. 13:00 verður uppboð á völdum hrossum. M.a. verður boðið upp brúnskjótt hestfolald Unnar frá Blönduósi sem er undan Álfi frá Selfossi og 1.verðlauna hryssunni Uglu frá Kommu. Þarna er tækifærið að ná sér í framtíðarstóðhest. Þeir hafa ekki verið ófáir stóðhestarnir sem hafa komið frá Kommu á sl. árum Kl. 14:30 verður dregið í happdrætti. Allir þeir sem kaupa sér kaffi hjá Kvenfélaginu Freyju fá happdrættismiða í kaupbæti. Fjöldi glæsilegra vinninga þar sem folald er aðalvinningurinn. Ekki dónalegt það. Skrifað af selma 23.09.2009 21:39Miðar á Uppskeruhátíð hestamanna rjúka út!
Miðar á Uppskeruhátíð hestamanna rjúka út!
Miðasala á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður 7.nóvember næstkomandi gengur glimrandi vel. Hestamenn kunna greinilega vel að meta stórlækkað miðaverð en miðinn fyrir matinn og ballið kostar aðeins 6.900 kr. Nú þegar, á þriðja degi miðasölunnar, hafa selst um 400 miðar í matinn sem er um helmingur þeirra miða sem í boði eru.Hátíðin verður með hefðbundnu sniði, þ.e. þriggja rétta glæsilegur málsverður, veitt verða knapaverðlaun sem og verðlaun fyrir ræktunarbú ársins, skemmtidagskrá og dansleikur fram eftir nóttu. Það er ljóst að hestamenn ætla að fjölmenna á Uppskeruhátíðina sem haldin er af Landssambandi hestamannafélaga og Félagi hrossabænda og gera sér glaðan dag. Skrifað af sm 14.09.2009 19:59Akkur frá Brautarholti fallinn
Stóðhesturinn
Akkur frá Brautarholti var felldur s.l. laugardag eftir að hafa veikst
alvarlega miðvikudaginn 2. september. Þrátt fyrir skjót og góð viðbrögð
dýralækna sem gerðu allt til að reyna bjarga hestinum var ekki annað
hægt en að fella þennan mikla höfðingja. Þetta kemur fram á http://www.hrima.is/, heimasíðu Tryggva Björnssonar á Blönduósi en hann var eigandi Akks ásamt Ásmundi Ingvasyni. Tryggvi segir
að ágætlega hafi litið út með bata en svo fór að lokum að honum hrakaði
mjög síðustu daga og því var ákveðið að fella hestinn. "Það er mjög
sorglegt að horfa á eftir þessum mikla höfðingja þar sem hann hefur
veitt manni mikla og góða kennslu og árangur frá því að við eignuðumst
hann í mars 2007", segir Tryggvi en þeir hafa verið sigursælir á
keppnisvellinum i gegnum tíðina. Akkur hafði hlotið í kynbótadóm 8,23 fyrir sköpulag, 8,80 fyrir hæfileika og 8,57 í aðaleinkun Sigurvegari í B. flokk hjá Þyt 2007 og 2009 heimild; huni.is Skrifað af selma 11.09.2009 11:38Skrapatungurétt 2009Stóðsmölun og réttir í A-Húnavatnssýslu Dagana 19. og 20. september verður mikið fjör í Austur Húnavatnssýslu, Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl:10:00 Ráðgert er að leggja af stað kl. 16 frá Kirkjuskarði. Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstursfjarlægð frá Blönduósi en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 40 mín.
Á laugardagskvöldinu leikur besta stóðréttarhljómsveit landsins Paparnir fyrir dansi í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar kl. 22:30. Barinn opinn. 18 ára aldurstakmark. Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í Skrapatungurétt um kl:11. Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna og ferðafólks
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is