Færslur: 2010 Janúar31.01.2010 20:35Næsta æfing fyrir fjórgang er á þriðjudagskvöldÞetta er Raggi Stef. liðsstjóri Austur-Húnvetnska liðsins í Húnvetnsku liðakeppninni (myndin tekin af Þytssíðunni, frábær mynd Kolla) Hann hafði í nógu að snúast sl. laugardag þegar góður hópur fólks mætti til æfinga í Reiðhöllinni. Næsta æfing er þriðjudagskvöldið 2. febrúar kl. 21.00 Skrifað af selma 29.01.2010 19:46Æfing fyrir fjórganginnSenn líður að fyrsta mótinu í Húnvetnsku liðakeppninni en fjórgangur verður 5. feb. í Hvammstangahöllinni. Þeir sem vilja vera með liðinu þ.e. Austur-Húnvetnska hafi samband við Ragga Stef í síma 8988924. Raggi ætlar að vera í Reiðhöllinni á morgun, laugardag kl. 17.00 og aðstoða þá sem það vilja, fara yfir keppnisreglurnar og æfa fjórganginn. Mætum svo öll í Hvammstangahöllina 5. feb. Skrifað af selma 29.01.2010 10:26Yngir krakkarnir mættu í gærÞað var gaman hjá byrjendahópunum sem mættu á námskeið í gær. Þau eru 20 og skipt í 3 hópa, alveg byrjendur, aðeins vanari og þau sem eru búin að vera í mörg ár en ekki nógu gömul til að komast í knapamerki 1 en það er 12 ára aldurstakmark þar. Kennarar eru Christina Mai og Sonja Noack. Myndir eru komnar í myndaalbúm. Skrifað af selma 28.01.2010 14:40Sjö nýjir knapar í KS deildinniKnaparnir sjö sem unnu sér inn keppnisrétt í KS deildina í vetur ![]() Í gærkvöldi fór fram úrtöka fyrir KS deildina og var keppt um sjö laus sæti fyrir keppni vetrarins. Hestakostur var mjög góður og glæsilegar sýningar fengu litið dagsins ljós fyrir þá rúmlega tvöhundruð áhorfendur sem fylgdust með. Upphaflega átti að keppa um sex sæti en Stefán Friðgeirsson frá Dalvík sem vann sér inn keppnisrétt í fyrra boðaði forföll svo einum var bætt við og því sjö keppendur sem komust áfram. Eftirtaldir knapar komust áfram í aðalkeppnina. 1-2 Tryggvi Björnsson Skrifað af sm 27.01.2010 11:44Húnvetnska liðakeppninFyrsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni verður föstudagskvöldið 5. febrúar nk. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected] og
verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 02.02. Keppt
verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki og flokki 17. ára og yngri
(fædd 1993 og seinna) Það
sem koma þarf fram er knapi, lið, hestur, ætt, litur og aldur og upp á
hvora hönd þið viljið ríða. Það verða mjög líklega tveir inn á í einu
og er prógrammið, hægt tölt, brokk, fet, stökk og fegurðartölt. Skráningargjald er 1.500.- fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Aðgangseyrir er 1.000.- Allt um reglur keppninnar má sjá hér. Mótanefnd Húvetnsku liðakeppninnar Skrifað af selma 26.01.2010 08:29Ráslisti fyrir úrtöku í KS-deild
Keppt verður i 4-gangi og 5-gangi og ræður sameiginlegur árangur. Nú þegar eiga tryggt sæti
í deildinni þau: Þórarinn Eymundsson, Mette Manseth, Ísólfur Líndal
Þórisson, Bjarni Jónasson, Björn Jónsson, Magnús Bragi Magnússon,
Ólafur Magnússon, Þorbjörn Mattíasson, Ragnar Stefánsson, Sölvi
Sigurðsson, Stefán Friðgeirsson og Erlingur Ingvarsson. 4 Gangur 1. Viðar Bragason. Von frá Syðra-Kolugili. 2. Gestur Stefánsson. Silfurdís frá Hjallalandi. 3. Rúnar Númason. Þota frá Þrastarstöðum. 4. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir. Vígur frá Eikarbrekku. 5. Elvar Eylert Einarsson. Mön frá Lækjamóti. 6. Pernille Muller. Sorró frá Hraukbæ. 7. Hörður Óli Sæmundarson. Valli frá Vatnsleysu. 8. James Bóas Faulkner. Vígtýr frá Lækjamóti. 9. Tryggvi Björnsson. Penni frá Glæsibæ. 10. Líney María Hjálmarsdóttir. Þytur frá Húsavík. 11. Lísa Rist. Fúga frá Hestheimum. 12. Riikka Anniina. Gnótt frá Grund. 13. Þorsteinn Björnsson. Ögri frá Hólum. 5. Gangur 1. Hörður Óli Sæmundarson. Hagsýn frá Vatnsleysu. 2. James Bóas Faulkner. Úlfur frá Fjalli. 3. Tryggvi Björnsson. Óðinn frá Hvítárholti. 4. Gestur Stefánsson. Stella frá Sólheimum. 5. Líney María Hjálmarsdóttir. Vaðall frá Íbishóli. 6. Rúnar Númason. Prúð frá Minni-Reykjum. 7. Pernille Muller. Spænir frá Hafrafellstungu. 8. Riikka Anniina. Styrnir frá Neðri-Vindheimum. 9. Þorsteinn Björnsson. Kilja frá Hólum. 10. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir. Venus frá Sjávarborg. 11. Lísa Rist. Táta frá Glæsibæ. 12. Viðar Bragason. Sísí frá Björgum. 13. Elvar Eylert Einarsson. Kóngur frá Lækjamóti. Reiðhöllin Svaðastaðir Skrifað af selma 24.01.2010 22:41Námskeið í Reiðhöllinni vikuna 24. - 30. janúar 2010Mánudaginn 25. jan. kl. 17.30 - 20.30 Kn. 1 - konur Skrifað af selma 22.01.2010 08:48Knapamerkin komin af staðÞá eru öll knapamerkin komin af stað en byrjendahóparnir byrja fimmtudaginn 28. jan. Hanna Lindmark kennir krökkunum í knapamerki 1 og 2 og hitti þá og foreldrana á þriðjudag. Sandra Marin fékk til sín krakkana í knapamerki 3 á miðvikudag og foreldrar komu að sjálfsögðu líka. ![]() Kallarnir mættu líka með sína hesta til Söndru á miðvikudag. Þeir voru beðnir um að slökkva á símunum sínum ![]() Fleiri myndir eru í myndaalbúmi. Skrifað af selma 19.01.2010 08:24Mikil umferðMikil umferð var upp í hesthúsahverfi í gær þegar fyrsta námskeið vetrarins fór af stað. Óli Magg hafði nóg að gera við að taka út hesta og knapa en 21 kona og 8 karlar eru skráðir í Knapamerki 1 en Sandra Marin mun kenna körlunum á miðvikudögum. Óli, Áslaug og Gulla Gerður Beta, Anna, Harpa, Sigga og Óli Sveinsstaðafjölskyldan Áhangendur, Finnur og Svavar með 2 litla. Þeir koma örugglega allir á námskeið næsta vetur Í kvöld eru knapamerki 1 og 2 hjá krökkunum. Skrifað af selma 17.01.2010 10:13Almennur fundurStjórn Neista heldur almennan félagsfund í Reiðhöllinni, kaffistofu, miðvikudagskvöldið 20. janúar kl. 20.30 Rætt verður um; Námskeiðahald í Reiðhöllinni Húnvetnsku liðakeppnina Mót vetrarins (heimamót) Stórsýninguna í mars Önnur mál Allir velkomnir Skrifað af selma 14.01.2010 22:06Námskeiðin byrja í næstu vikuÞá fer fjörið að hefjast, strax í næstu viku. Búið er að raða niður námskeiðum vetrarins og er þátttaka mjög góð á þau flest. Mánudaginn 18. janúar Knapamerki 1 - konur. Fyrsti hópur í Reiðhöll kl. 17.30. Ef einhver hefur ekki fengið póst um hvenær mæting er þá endilega hafa samband á netfang Neista eða Selmu í síma 661 9961. Kennari er Ólafur Magnússon. Þriðjudagur 19. janúar kl. 17.30 er Knapamerki 1 - krakkar. Kennari er Hanna María Lindmark. Þriðjudagur 19. janúar kl. 18.30 er Knapamerki 2 - krakkar. Kennari er Hanna María Lindmark. Miðvikudagur 20. janúar kl. 18.00 er Knapamerki 3 - krakkar. Kennari er Sandra Marín. Miðvikudagur 20. janúar kl. 19.00 er Knapamerki 1 - karlar. Kennari er Sandra Marín. Námskeið hjá byrjendahóp og lengra komnir, þ.e. yngri börnin öll, byrja fimmtudaginn 28. janúar. Haft verður samband við foreldra og einnig verður það auglýst hér á síðunni. Skrifað af selma 13.01.2010 09:04Húnvetnska liðakeppninMótanefnd
liðakeppninnar fundaði nýverið með liðsstjórum allra liðanna og var
farið yfir reglur keppninnar og hér fyrir neðan má sjá niðurstöðuna
sem allir voru mjög sammála um. Framundan er spennandi keppni og
styttist í fyrsta mót sem verður 5. febrúar í Hvammstangahöllinni. Reglur keppninnar árið 2010: Liðin skiptast þannig, Stig í A-úrslitum eru gefin þannig: Stig í B-úrslitum eru gefin þannig: Það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum. Stig í B-úrslitum eru gefin þannig: Það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum. Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig. Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Skrifað af selma 10.01.2010 23:53KS-Deildin Úrtaka
Úrtaka fyrir 6 laus sæti í KS-Deildinni verður haldin miðvikudagskvöldið 27 janúar í Svaðastaðahöllinni. Keppt verður í fjórgangi og fimmgangi og gildir samanlagður árangur. Skráning fyrir föstudagskvöldið 22 janúar hjáEyþóri í síma 842-5240. Meistaradeild Norðurlands Skrifað af selma 10.01.2010 23:49Kynbótasýningar 2010Fagráð í hrossarækt hefur ákveðið tímasetningar kynbótasýninga árið 2010. Alls verða sýningarnar 19 talsins og verður sú fyrsta á Sauðárkróki dagana 22. og 23.apríl og síðasta sýningin verður svo dagana 18. - 20. ágúst í Skagafirði/Eyjafirði. Tími Staður Sími Skrifað af selma 09.01.2010 09:57Mikill áhugiGaman var að sjá hve margir komu á kynningarfund um Knapamerkin sem Helga Thoroddsen var með sl. fimmtudagskvöld. Mjög áhugaverður fundur og greinilegt að það er mikill áhugi hjá fólki að kynnst því hvað felst í því að fara í Knapamerkin. Skrifað af selma
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is