Færslur: 2010 Febrúar03.02.2010 12:09Húnvetnska liðakeppninJÆJA......... rúmlega 100 keppendur skráðir til
leiks.... Mótanefndin Skrifað af selma 02.02.2010 16:55Æfing og skráningMinna á æfingu fyrir fjórgang í kvöld. Maggi í Steinnesi ætlar að mæta á Braga frá Kópavogi og vinna fjórganginn fyrir vestan á föstudaginn. Muna líka að það er lokaskráning í kvöld fyrir fjórganginn í Húnvetnsku liðakeppninni. Sjá hér. Skrifað af selma 02.02.2010 10:55Ís-landsmót á SvínavatniSiggi Sig. og Freyðir Laugardaginn 6. mars verður haldið Ís-landsmót á Svínavatni í A-Hún. Mótið hefur verið það sterkasta og fjölmennasta sem haldið hefur verið á ís hérlendis undanfarin ár og lítur út fyrir að þar verði engin breyting á. Fyrirkomulag verður með svipuðu sniði og verið hefur og verður það nánar auglýst síðar. Undirbúningsnefndin Skrifað af selma 01.02.2010 22:14Hefur þú áhuga á að bjóða unglingum í heimsókn?![]() Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost
á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF. Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 - 17 ára verða í 1
- 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum. Þetta er tækifæri fyrir
áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl. Einnig er fyrirhugað að bjóða erlendum unglingum til dvalar hér á landi á sömu forsendum. Æskulýðsnefndin óskar eftir áhugasömum unglingum sem vilja fara og fjölskyldum sem mundu vilja bjóða heim erlendum unglingum. Miðað verður við að þátttökugjald standi undir kostnaði. Ef þið hafið áhuga vinsamlega hafið samband sem fyrst við æskulýðsnefnd LH. Tölvupóstföng og símanúmer eru á heimasíðu LH á www.lhhestar.is Með kveðju Æskulýðsnefndar LH Skrifað af selma Flettingar í dag: 2926 Gestir í dag: 80 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 932521 Samtals gestir: 88640 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 23:24:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is