Færslur: 2011 Mars31.03.2011 11:47KS-deildin ÚRSLITEyjólfur hampar öðrum titli
"Mikill spenna var hjá knöpum og áhorfendum sem tóku vel undir með hrópum og fagnaðarlátum. Smalakóngurinn Magnús Bragi Magnússon sigraði smalann eins og oft áður og var allveg magnað að sjá þá félaga Magnús og fák hans Frama frá Íbishóli fara smalabrautina villulaust á ógnarhraða. Og voru Magnús og Frami hilltir af áhorfendum lengi og vel í verðlaunaafhendingu. Skeiðið var mjög spennandi allt fram á síðasta hest. Um sigurinn börðust Elvar Einarsson á Kóng frá Lækjamóti og Árni Björn Pálsson á Ás frá Hvoli, báðir fóru þeir 60 metranna undir 5 sek sem er mjög gott miðað við árstíma. Árni Björn hafði sigur í skeiðinu og fór báða sprettina undir 5 sek ( 4,99 og 4,97 sek )og eru Ás og Árni Björn í feykna fomi. Meistaradeild Norðurlands þakkar styrktaraðila KS-deildarinnar Kaupfélagi Skagfirðinga kærlega fyrir rausnalegan stuðning," segir í tilkynningu frá aðstandendum mótaraðarinnar. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi: Smali Skeið Lokaúrslit einstaklingskeppninnar eru eftirfarandi: Skrifað af selma 30.03.2011 08:16LOKASKRÁNINGARDAGUR á Grunnskólamótið er í dagSunnudaginn 3. apríl verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi
vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið
klukkan 13:00 Þetta er síðasta mótið í vetur og verður
spennandi að sjá hvaða skóli ber sigur úr bítum. En mest gaman er að sjá
sem flesta keppendur spreyta sig og bæta sinn eigin árangur. Skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 30. mars á netfangið [email protected] Keppt verður í: 1. - 3. bekkur fegurðarreið Við skráningu skal koma fram: nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið. Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.Skrifað af selma 30.03.2011 08:14Sparisjóðs-liðakeppnin tölt
Skrifað af selma 29.03.2011 20:30Stórsýning Þytsverður haldin í Þytsheimum laugardaginn 2.apríl kl. 20:30 hestafimleikar, skrautsýning og óvænt atriði.
Aðgangseyrir 1500 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri Skrifað af selma 28.03.2011 13:05Grunnskólamót - HvammstangaSunnudaginn 3. apríl verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið klukkan 13:00 Þetta er síðasta mótið í vetur og verður spennandi að sjá hvaða skóli ber sigur úr bítum. En mest gaman er að sjá sem flesta keppendur spreyta sig og bæta sinn eigin árangur. Æskilegt er að skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 30. mars á netfangið [email protected] Keppt verður í: 1. - 3. bekkur fegurðarreið 4. - 7. bekkur tölt 8. - 10. bekkur tölt 8. - 10. bekkur skeið Við skráningu skal koma fram: nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið. Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.
Reglur keppninnar eru: Grunnskólamót Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt. 1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 3 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál. Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, 1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig Skrifað af selma 25.03.2011 08:16Tilkynning frá Landsmóti og Landssambandi hestamanna
N1 er orðinn einn af stærstu styrktaraðilum Landsmóts og Landssambands hestamannafélaga. Öllum hestamönnum stendur nú til boða að fá N1 kortið með sérkjörum og um leið geta viðkomandi aðilar valið sitt hestamannafélag til þess að styrkja. Hálf króna af hverjum seldum lítra rennur þá sem fjáröflun til viðkomandi félags. Þeir aðilar sem nú þegar hafa N1 kort eru vinsamlega beðnir að senda tölvupóst til LH á [email protected] eða hringja í síma 514-4030 með ósk um hvaða hestamannafélag það vill að kortið sitt styrki og mun sú ósk í engu breyta um kjör viðkomandi hjá N1. LH mun síðan koma þeim skilaboðum áleiðis til N1. Það er því hagur hestamannafélaganna að þeirra félagar noti kortin frá N1 og er þetta mjög góð fjáröflun fyrir félög innan Landssambands hestamannafélaga. Aðildarfélög LH og félagsmenn fá frábær kjör með N1 kortinu. Sérstök tilboð eru í gangi á hverjum tíma varðandi fjáröflunarvörur. Hægt er að greiða fyrir allar vörur í öllum N1 verslunum og þjónustustöðvum með N1 punktum (1 punktur = 1 króna). Endilega nýtið þetta góða tækifæri sem getur verið góð tekjuöflun næstu árin og þess má geta að hver N1 korthafi fær 1000 króna afslátt af hverjum miða inn á Landsmót hestamanna 2011 og 2012. Skrifað af selma 22.03.2011 16:20Fundur um málefni hestamanna á BlönduósiHestaeigendafélag Blönduóss boðar til fundar um málefni hestamanna á Blönduósi í Reiðhöllinni fimmtudaginn 24. mars kl. 20:30. Rætt verður um fasteignagjöld, landleigu, landmat ofl. málefni sem brenna á hesthúsaeigendum, landleigjendum og almennum hestamönnum.
Skrifað af selma 22.03.2011 16:18Aðalfundur Samtaka Hrossabænda í A.-Hún.Hrossabændur - Hestaáhugafólk Aðalfundur Samtaka Hrossabænda í A- Hún verður haldinn í Reiðhöllinni á Blönduósi þriðjudaginn 29. mars 2011 og hefst stundvíslega kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf - stóðhestahald 2011 ofl. Fræðslufundur undir yfirskriftinni "Ræktun í Kirkjubæ" hefst kl 21:00 en þar mun Ágúst Sigurðsson hrossaræktandi í Kirkjubæ og fyrrverandi landsráðunautur í hrossarækt segja frá hrossaræktinni í Kirkjubæ sem er landsþekkt og byggir á gömlum grunni. Ágúst mun fara yfir sviðið í víðu samhengi og sýna myndir máli sínu til stuðnings. Umræður að lokinni framsögu . Kaffi og kleinur
Athugið að fræðslufundurinn er öllum opinn Stóðhestar á vegum Samtaka Hrossabænda í A-Hún sumarið 2011: Víðir frá Prestsbakka verður á Þingeyrum á fyrra gangmáli. Víðir er brúnn 10 v alhliðahestur undan Keili frá Miðsitju og Gleði frá Prestsbakka, bygging 8,41; hæfilækar 8,30 og aðaleinkunn 8,34. Verð til félagsmanna 85 þús með öllu. Brimnir frá Ketilsstöðum verður á Gauksmýri eftir landsmót. Brimnir er bleikálóttur 6 v alhliðahestur undan Álfasteini frá Selfossi og Vakningu frá Ketilsstöðum, bygging 8,28; hæfilækar 8,56 og aðaleinkunn 8,45. Verð til félagsmanna 110 þús með öllu. Pantanir hjá Gunnari á Þingeyrum ([email protected]) eða Magnúsi í Steinnesi (897-3486) Samtök Hrossabænda í A-Hún Skrifað af selma 22.03.2011 08:45Myndir frá GrunnskólamótiHjálmar Kárdal kíkti á Grunnskólamótið á Sauðárkróki og tók myndir sem hann sendi okkur og eru þær komnar í myndaalbúm. Þökkum við honum kærlega fyrir. ![]() Hanna Ægisdóttir og Penni frá Stekkjardal Skrifað af selma 21.03.2011 16:29Grunnskólamót úrslitMjög góð þátttaka var á Grunnskólamótinu í hestaíþróttum sem haldið var í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í gær. Margir nemendur úr grunnskólum á Norðurlandi vestra tóku þátt og stóðu sig með stakriprýði. Eftirtektarvert er hvað krakkarnir eru vel ríðandi og æskulýðsstarf hestamannafélaganna hefur skilað góðum árangri. Eftir tvö mót af þremur stendur Varmahliðarskóli efstur með 67 stig en á hæla honum kemur Húnavallaskóli.
Úrslit í einstökum greinum.
Skrifað af selma 19.03.2011 09:00Jakkar
Skrifað af selma 18.03.2011 13:08Grunnskólamót - ráslistiGrunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra er sunnudag 20. mars í Reiðhöllinni á Sauðárkróki
og hefst kl. 13:00. Skráningargjöld skulu greidd áður en mót hefst og þá helst í peningum, ekki með kortum. Ráslisti má sjá á heimasíðu Léttfeta ! Skrifað af selma 17.03.2011 10:40KS-deildin - tölt úrslitGríðarlega spennandi og skemmtileg töltkeppni fór fram í KS-deildinni í gærkvöld. Að mati áhorfenda og knapa hafa sennilega eins sterk úrslit vart sést í reiðhöllinni Svaðastaðir áður. Árni Björn Pálsson á gæðingshryssunni List frá Vakursstöðum stóð upp sem sigurverari og var vel að því komin eftir glæsi sýningar. Áhorfendur voru vel með á nótunum og stemming verulega góð, og gaman að sjá hversu vel var mætt þrátt fyrir að veðurguðinn væri ekki í sínu besta skapi. Hér fyrir neðan má sjá úrslitin úr töltinu og stöðuna í stigasöfnunni eftir þrjár greinar. Keppt verður í smala og skeiði 30. mars og er það lokamótið og keppnin í deilinni er mjög jöfn og allt getur gerst enn. ![]() Úrslit urðu eftirfarandi: A-úrslit 1. Árni Björn Pálsson 8,39 2. Ólafur Magnússon 7,78 3. Eyjólfur Þorsteinsson 7,61 4. Bjarni jónasson 7,61 5. Sölvi Sigurðarson 6,72 B-úrslit 5. Sölvi Sigurðarson 7,00 6. Tryggvi Björnsson 6,94 7. Baldvin Ari Guðlaugsson 6,78 8. Hörður Óli Sæmundarson 6,72 9. Ísólfur L Þórisson 6,50 Forkeppni 1. Árni Björn Pálsson List frá Vakurstöðum 7,50 2. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 7,30 3. Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 7,30 4. Bjarni jónasson Komma frá Garði 7,13 5. Hörður Óli Sæmundarson Lína frá Vatnsleysu 6,83 6. Tryggvi Björnsson Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,70 7. Sölvi Sigurðarson Nanna frá Halldórsstöðum 6,70 8. Ísólfur L Þórisson Freymóður frá Feti 6,43 9. Baldvin Ari Guðlaugsson Blær frá Kálfholti 6,37 10. Mette Mannseth Stormur frá Herríðarhóli 6,30 11. Magnús Bragi Magnússon Vafi frá Y-Mói 6,27 12. Elvar Einarsson Lárus frá S-Skörðugili 6,27 13. Þorsteinn Björnsson Haukur frá Flugumýri 2 6,13 14. Riikka Anniina Gnótt frá Grund 2 6,07 15. Þórarinn Eymundsson Fold frá Miðsitju 6,00 16. Ragnar Stefánsson Sif frá Söguey 5,63 17. Jón Herkovic Formúla frá Vatnsleysu 5,47 Stigasöfnun eftir þrjár greinar 1 Eyjólfur Þorsteinsson 24,5 2 Bjarni Jónasson 20,5 3 Ólafur Magnússon 16 4 Árni Björn Pálsson 16 5 Tryggvi Björnsson 12 6 Þórarinn Eymundsson 11 7 Hörður Óli Sæmundarson 10 8 Sölvi Sigurðarson 7,5 9 Baldvin Ari Guðlaugsson 7 10 Ísólfur Líndal 6,5 11 Mette Mannseth 4 12 Erlingur Ingvarsson 3 Skrifað af selma 16.03.2011 21:07Staðan í einstaklingskeppninni í Sparisjóðs-liðakeppninniFyrir lokamótið í Sparisjóðs-liðakeppninni stendur einstaklingskeppnin svona: 1. flokkur 1. Tryggvi Björnsson 26 stig 2. Ísólfur L Þórisson 18 stig 3-4. Reynir Aðalsteinsson 15 stig 3-4. Elvar Einarsson 15 stig 5. Elvar Logi Friðriksson 14 stig 2. flokkur 1. Halldór Pálsson 14 stig 2-3. Sveinn Brynjar Friðriksson 12 stig 2-3. Pálmi Geir Ríkharðsson 12 stig 4. Vigdís Gunnarsdóttir 10 stig 5. Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir 8 stig 3. flokkur 1. Ragnar Smári Helgason 4,5 stig 2-4. Selma Svavarsdóttir 3 stig 2-4. Kristján Jónsson 3 stig 2-4. Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir 3 stig Unglingaflokkur 1-2. Jóhannes Geir Gunnarsson 8 stig 1-2. Ásdís Ósk Elvarsdóttir 8 stig 3, Fríða Marý Halldórsdóttir 5,5 stig 4-5. Rakel Ólafsdóttir 5 stig 4-5. Birna Ósk Ólafsdóttir 5 stig Skrifað af selma 14.03.2011 17:54Grunnskólamót á Sauðárkróki 20. marsSunnudaginn 20. febrúar verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki og hefst mótið klukkan 13:00 Æskilegt er að skráningar berist fyrir miðnætti á miðvikudag, 16. marz á netfangið [email protected] Við skráningu skal koma fram: nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið. Taka skal skýrt fram hjá 4. - 7. bekk hvort keppa á í tví- eða þrígangi. Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst. Keppt verður í: 1. - 3. bekkur fegurðarreið
Reglur keppninnar eru: Grunnskólamót Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt.
1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. 2. Keppnisgreinar eru: Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 3 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál. Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur 6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. - 7. bekk. verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum. 7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur. Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis. 1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla2. sæti gefur 8 stig 3. sæti gefur 7 stig 4. sæti gefur 6 stig 5. sæti gefur 5 stig. Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig Skrifað af selma
Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is