Færslur: 2011 Desember23.12.2011 21:52Gleðileg jólHestamannafélagið Neisti óskar félagsmönnum, Húnvetningum sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum stuðning, gott samstarf og Skrifað af selma 15.12.2011 08:16Spennandi vetur framundanÞað styttist í nýtt, spennandi og viðburðaríkt ár hjá Hestamannafélaginu Neista. Námskeiðin verða öll á sínum stað og 1. mót vetrarins verður 5. febrúar þar sem krakkarnir ætla að hittast og keppa í tölti. Verkleg kennsla í knapamerkjum hefst í 2. viku í janúar og ættu þeir sem voru í bóklegu námskeiði nú í haust að vera búnir að fá upplýsingar um það. Kennarar eru Barbara Dittmar og Hafdís Arnardóttir. Eins og undanfarin ár verður boðið uppá reiðnámskeið fyrir börn, bæði byrjendur og lengra komna og byrja þau í síðustu viku janúar. Þeir sem hafa hug á þeim námskeiðum vinsamlegast skráið ykkur á netfang Neista fyrir 15. janúar. Kennari verður Ragnhildur Haraldsdóttir. Birna Tryggvadóttir kemur og verður með námskeið 27.-29. janúar bæði almennt fyrir börn, unglinga og fullorðna og einnig keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna. Hún tekur einnig í einstaklingskennslu ef þess er óskað. Skráning er á netfang Neista fyrir 15. janúar. Einnig má fá uppslýsingar hjá Selmu í síma 661 9961. Fyrsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni verður á Hvammstanga 10. febrúar og keppt veður í fjórgangi. Þangað ætlum við Neistafélagar auðvitað að mæta. Fyrir keppni verður boðið uppá bóklegar og verklegar æfingar og verður það auglýst síðar. Skrifað af selma 14.12.2011 08:55Jólaleikur LandsmótsÓ já, jólastemningin fer að ná hámarki hér á skrifstofu Landsmóts og hér eru mandarínur og piparkökur í öll mál. Við viljum endilega hvetja ykkur til að taka þátt í jólaleiknum okkar og freista gæfunnar um leið og miði á LM 2012 er keyptur á forsöluverði. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins 10.000 krónur með LH/BÍ afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er 18.000 krónur. Á Þorláksmessu förum við í sparifötin, fáum okkur smákökur, malt & appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain Horse úlpa frá Líflandi, hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum. Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Smelltu þér á miðasöluvef landsmóts svo þú eigir möguleika á vinningi! Gleðileg jól! --------------------///--------------------- DVD diskur frá LM 2011 Já það er margt að gerast hjá Landsmóti. Á skrifstofu Landsmóts er hægt að kaupa gjafabréf fyrir miða á Landsmót sem er vitanlega tilvalið í jólapakka hestamannsins! Hafið samband í síma 514 4030 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] Að lokum minnir Landsmót á DVD diskana frá mótinu í sumar á Vindheimamelum sem nú fara að koma úr framleiðslu. Gefinn verður út annars vegar DVD með hápunktum Landsmóts og hins vegar kynbótahross á Landsmóti. Þetta er gríðarlega mikið efni, eða rúmlega átta klukkustundir í það heila og frábær heimild um gott mót norður í Skagafirði í sumar. Hápunktarnir munu kosta kr. 5.000 og kynbótadiskurinn kr. 8.000. Þarna er komin önnur hugmynd að frábærri gjöf í jólapakka hestamannsins! Vonast er til að hægt verði að dreifa diskunum í verslanir á föstudaginn 16.desember en einnig er hægt að panta diskinn á skrifstofu LH/Landsmóts í síma 514 4030 og fá hann sendan í póstkröfu eða greiða með kreditkorti í gegnum síma. Diskurinn verður m.a. fáanlegur í eftirtöldum verslunum: Lífland Lynghálsi og Akureyri, Baldvin & Þorvaldur Selfossi, Knapinn Borgarnesi, Skagfirðingabúð Sauðárkróki, KS Varmahlíð og Fákasport Akureyri. Skrifað af selma 11.12.2011 10:47Almennur félagsfundurAlmennur félagsfundur hestamannafélagsins Neista verður haldinn miðvikudaginn 14.des kl. 20.30 í Reiðhöllinni Arnargerði. Rætt verður um dagskrá vetrarins, þáttöku og undirbúning í viðburðum vetrarins og almennt um félagsstarf Neista. Vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Skrifað af selma 01.12.2011 20:31Vöru- og sölukynning í Þytsheimum, HvammstangaÞann 3. desember nk. verða verslanirnar Kidka og Knapinn Borgarnesi með kynningu og sölu á vörum sínum í Þytsheimum frá kl. 13:00 - 19:00. Einnig verður kynning á spæni frá Skógarvinnslunni og dagatal hestamannafélagsins til sölu frá kl. 13:00 - 16:00 . Notið ykkur þetta tækifæri til að versla í heimabyggð. Heitt á könnunni :) Fræðslunefnd Þyts Skrifað af selma
Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is