Færslur: 2012 Febrúar18.02.2012 08:23Úrslit Húnvetnsku liðakeppninnar í fjórgangiOkkar fólk stóð sig frábærlega í fjórgangnum á Hvammstanga í gærkvöldi til hamingju með það. Eftir fyrsta mót er lið 3 efst með 56,5 stig. Lið 1 er næst með 43,5 stig, lið 2 í þriðja sæti með 39,5 stig og í fjórða sæti er lð 4 með 28,5 stig. Hér má sjá úrslit kvöldsins. Fjórgangur A-úrslit 1.flokkur 1 Ísólfur Líndal Þórisson og Kristófer frá Hjaltastaðahvammi Fork / úrslit 6,60 / 7,00 2 Artemisia Bertus / Þytur frá Húsavík Fork / úrslit 6,60 / 6,90 3 Fanney Dögg Indriðadóttir / Grettir frá Grafarkoti Fork / úrslit 6,30 / 6,83 4 Tryggvi Björnsson og Goggur frá Skáney Fork / úrslit 6,50 / 6,77 5 Ragnhildur Haraldsdóttir og Börkur frá Akurgerði Fork / úrslit 6,33 / 6,33 Fjórgangur B-úrslit 1. flokkur 5 Fanney Dögg Indriðadóttir/Grettir frá Grafarkoti Fork / úrslit 6,30 / 6,8 6 Jakob Víðir Kristjánsson/Börkur frá Brekkukoti Fork / úrslit 6,13 / 6,47 7 Líney María Hjálmarsdóttir/völsungur frá Húsavík Fork / úrslit 6,23 / 6,47 8 Elvar Einarsson/Ópera frá Brautarholti Fork / úrslit 6,13 / 6,37 9 Kolbrún Grétarsdóttir/Stapi frá Feti Fork / úrslit / 6,23 /6,10 10 Sæmundur Sæmundsson/Mirra frá Vindheimum Fork / úrslit / 6,17 / 6,07 Fjórgangur A-úrslit 2. flokkur 1 Vigdís Gunnarsdóttir / Freyðir frá Leysingjastöðum II Fork/úrslit 5,90 / 6,63 2 Jónína Lilja Pálmadóttir / Svipur frá Syðri-Völlum Fork/úrslit 6,33 /6,37 3 Jóhanna Friðriksdóttir / Burkni frá Stóru-Ásgeirsá Fork/úrslit 6,03 / 6,17 4 Kolbrún Stella Indriðadóttir / Kasper frá Grafarkoti Fork/úrlslit 6,00 / 6,13 5 Ragnar Smári Helgason / Vottur frá Grafarkoti Fork/úrslit 6,00 / 5,93 Fjórgangur B-úrslit 2. flokkur 5 Vigdís Gunnarsdóttir/Freyðir frá Leysingjastöðum II Fork/úrslit 5,90 / 6,47 6 Gréta Brimrún Karlsdóttir/Þróttur frá Húsavík Fork/úrslit 5,83 / 6,13 7 Jóhann Albertsson/Viðburður frá Gauksmýri Fork/úrslit 5,97 / 6,13 8 Þórhallur Magnús Sverrisson/Arfur frá Höfðabakka Fork/úrslit 5,77 / 5,3 9 Þórður Pálsson/Áfangi frá Sauðanesi Fork/úrslit 5,73 / 5,13 Fjórgangur B-úrslit unglingaflokki 5 Eva Dögg Pálsdóttir/Sátt frá Grafarkoti Fork/úrslit 5,50 / 6,0 6 Viktoría Eik Elvarsdóttir/Máni frá Fremri Hvestu Fork/úrslit 5,47 / 5,83 7 Aron Orri Tryggvason/Kátína frá Steinnesi Fork/úrslit 5,43 / 5,7 8 Fríða Björg Jónsson/Blær frá Hvoli Fork / úrslit 5,4 / 5,53 9 Kristófer Smári Gunnarsson/Djákni frá Höfðabakka Fork / úrslit 5,23 / 5,2 Fjórgangur A-úrslit unglingaflokkur 1 Ásdís ósk Einarsdóttir / Lárus frá Syðra Skörðugili Fork/úrslit 5,57 / 6,37 2 Birna Olivia Ödqvist / Jafet frá Lækjamóti Fork/úrslit 5,73 / 6,10 3 Eva Dögg Pálsdóttir / Sátt frá Grafarkoti Fork/úrslit 5,50 / 5,73 4 Friðrún Fanný Guðmundsdóttir /Demantur Fork/úrslit 5,70 / 5,50 5 Brynja Kristinnsdóttir / Tryggvi Geir frá Steinnesi Fork/úrslit 5,70 / 1,80 lauk ekki keppni Fjórgangur A-úrslit 3.flokkur 1 Rúnar Örn Guðmundsson / Kasper frá Blönduósi Fork/úrslit 5,50 / 5,57 2 Irena Kamp / Glóð frá Þórukoti Fork/úrslit 4,70 / 5,37 3 Hanefe Muller / Silfurtígur frá Álfhólum Fork/úrslit 5,03 / 5,07 4 Sigurbjörg Þ Marteinsdóttir / Konráð frá Syðri-Völlum Fork/úrslit 5,17 / 4,23 5 Jón Benedikts Sigurðsson / Dama frá Böðvarshólum Fork/úrslit 5,03 / 4,13 Skrifað af selma 16.02.2012 22:50Skemmtilegt mótAldeilis flott og skemmtilegt töltmót í Reiðhöllinni í kvöld. Keppt var í fyrsta skipti í T7 en þar voru 19 skráðir til leiks. Í B-úrslitum í T7 urðu þessi: 1. Víðir og Snar 2.-3. Sigurður Bjarni og Þokki 2.-3. Veronika og Fiðringur 4. Hanefe og Silfurstígur 5. Sólrún Tinna og Gjá Í A úrslitum í T7 voru: 1. Þórður Páls og Áfangi 2. Höskuldur og Börkur 3. Ragnhildur og Hatta 4. Víðir og Snar 5. Magnús Ó og Dynur Úrslit í T1 urðu: 1. Ólafur M og Ódeseifur 2. Magnús Ó. og Gleði 3. Ægir og Gítar 4. Selma og Hátíð 5. Pétur og Prímus Mótanefnd þakkar öllum þeim sem að þessu móti kom á einn eða annan hátt kærlega fyrir. Næsta mót er fyrirhugað 26. febrúar á ísnum á Hnjúkatjörn en það verður auglýst þegar nær dregur. Hér að neðan er smá myndbandssamantekt frá mótinu. Skrifað af selma 15.02.2012 16:02AðalfundurAðalfundur hestmannafélagins Neista verður þriðjudagskvöldið 21. febrúar kl. 20:30 í Reiðhöllinni Arnargerði. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin Skrifað af selma 13.02.2012 12:52Tölt í reiðhöllinniOpið töltmót í reiðhöllinni Arnargerði fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.00 ![]() Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 14. febrúar. Keppt verður í T1 opnum flokki og T7 opnum flokki. Fram þarf að koma; knapi og hestur og uppá hvaða hönd er riðið. Skráningargjald er 1.000 kr fyrir hverja skráningu. Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum. Mótin í reiðhöllinni og ístöltið á Hnjúkatjörn er stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum. Mótanefnd Skrifað af selma 12.02.2012 17:52Opnun Húnvetnsku liðakeppninnar 2012 - FJÖRIÐ FER AÐ BYRJA !!!!Flott myndband þar sem liðstjórar Húnvetnsku liðakeppninnar 2012 eru kynntir til leiks. Okkar maður, Rúnar, fer auðvitað á kostum. 10.02.2012 07:48Grunnskólamót 2012 - NÝJAR dagsetningar![]() Því miður þurfum við að breyta áður auglýstum dagsetningum fyrir Grunnskólamótin í vetur. Mjög erfitt er að finna daga sem skarast sem minnst á við það sem er á dagskrá hjá skólunum og hestamannafélögunum, en endanlegar dagsetningar eru eftirfarandi: 4. mars, fegurðarreið (1.-3. bekkur), tölt (4.-10. bekkur) og skeið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga 18. mars, fegurðarreið (1.-3. bekkur), tvígangur (4.-7. bekkur), þrígangur (4.-7. bekkur), fjórgangur (8.-10. bekkur) og skeið í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki 25. mars, þrautabraut (1.-3. bekkur), smali (4.-10. bekkur) og skeið (8.- 10.bekkur) í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi. Nánar auglýst þegar nær dregur. Æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra Skrifað af selma 07.02.2012 22:51Mótaraðirnar af staðMótaraðirnar eru að hefjast. Fyrsta mót vetrarins í Reiðhöllinni verður 16. febrúar. Keppt verður í T7 tölti. Nánar auglýst síðar. Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar verður 17. febrúar á Hvammstanga, sjá fyrri frétt. Spennandi keppnistímabil framundan ![]() Skrifað af selma 07.02.2012 22:48Húnvetnska liðakeppnin - fjórgangurÞá
fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður 17.
febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 14.
febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Keppt verður í
fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki
17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn
og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða.
Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt -
fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit
verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk -
fegurðartölt. Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri. Mótanefnd Skrifað af selma 05.02.2012 17:18Flottir krakkarÞað er alltaf gaman að koma saman og svo var í dag þegar krakkarnir komu og kepptu í tölti í Reiðhöllinni. Hér eru þau sem tóku þátt í pollaflokknum en þau fengu öll verðlaun, að sjálfsögðu, fyrir hvað þau eru flott og dugleg ![]() Bjartmar, Hlíðar, Olga og Einar. Það voru líka flottir krakkar sem tóku þátt í barnaflokknum og þau stóðu sig öll mjög vel, en eins og gengur komust bara 5 í úrslit. Úrslit í barnaflokki: 1. Sigurður Bjarni og Þokki 2. Sólrún Tinna og Gjá 3. Ásdís Freyja og Gráni 4. Magnea Rut og Sigyn 5. Ásdís Brynja og Ör Í unglingaflokki gekk líka allt glimrandi vel enda nokkuð vanir unglingar þar á ferð, þau voru reyndar bara 3 í dag. Úrslit í unglingaflokki: 1. Sigurgeir Njáll og Hátíð 2 Friðrún Fanný og Demantur 3. Hákon Ari og Gleði Eftir keppnina bauð æskulýðsnefndin uppá kaffi og kökur. Það var mjög vel sótt enda gott að setjast niður með kaffibolla/djús og fullt af kökum eftir skemmtilega og flotta keppni. Mjög vel heppnaður og skemmtilegur dagur. Takk allir ![]() Höskuldur tók myndir og setur þær inn í myndaalbúm. Skrifað af selma 03.02.2012 21:42Ís-landsmótið eftir mánuðLaugardaginn 3. mars nk. verður árlegt Ís-landsmót haldið á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu. Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur. Heimasíða mótsins er is-landsmot.is Skrifað af selma 03.02.2012 08:06Gólfið lagað í kvöldÍ kvöld á að laga gólfið í Reiðhöllinni svo hún verður lokuð eftir kvöldmat. Þeir sem hafa áhuga og geta komið til að þrífa reiðsalinn eru velkomnir. Skrifað af selma 02.02.2012 08:25Ísmót á ÓlafsfirðiHólmar Hákon, fyrrverandi Neistafélagi, sem nú býr á Ólafsfirði býður okkur velkomin á Ísmót Gnýfara á Ólafsfirði 11. febrúar. Gnýfari Ólafsfirði Skrifað af selma 01.02.2012 08:00Æskan - töltmótTöltmót barna og unglinga sunnudaginn 5. febrúar kl. 14.00
Skráning er á netfang Neista neisti.net@simnet.is fyrir kl. 20:00 föstudaginn 3. febrúar.
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is