Færslur: 2012 September27.09.2012 09:10Hestamenn hugi vel að hesthúsum sínum um helginaLaufskálarétt í Skagafirði fer fram um helgina. Hestamenn í Húnaþingi ættu að huga vel að hesthúsum sínum því reynslan hefur sýnt að síðastliðin ár hefur verið brotist inn í hesthús hér á svæðinu og verðmætum stolið á sama tíma og Laufskálarétt er haldin. Skrifað af selma 13.09.2012 17:48Ævintýri norðursins 2012 ***ATH. BREYTT DAGSKRÁ***Stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt Laugardaginn 15. september næstkomandi verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal. Öllum er velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr. Lagt verður upp frá Skrapatungurétt kl. 11:00. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt kl. 13:00 og haldið þaðan kl. 15:00. Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson.
Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt. Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag í Skrapatungurétt. Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Um kvöldið verða veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Stórdansleikur með Pöpum verður í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar kl. 23:00. Barinn opinn og er aldurstakmark 18 ár. Sunnudaginn 16. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt kl. 11:00. Skemmtileg alíslensk stemning. Veitingasala í réttarskála. Skrifað af selma 04.09.2012 08:36Ævintýri norðursins 2012Stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt. ![]() Laugardaginn 15. september næstkomandi verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal. Öllum er velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr. Lagt verður upp frá Strjúgsstöðum í Langadal klukkan 10. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt klukkan 14 og haldið þaðan klukkan 16. Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson.
Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt. Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag á Strjúgsstöðum, við sandnámu (norðan afleggjara). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Um kvöldið verða veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum á Blönduósi. Stórdansleikur með Pöpum verður í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar klukkan 23. Barinn opinn og er aldurstakmark 18 ár. Sunnudaginn 16. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt klukkan 11. Skemmtileg alíslensk stemning. Veitingasala í réttarskála. Skrifað af selma 01.09.2012 09:04SöluhrossElka Guðmundsdóttir verður á ferð um miðjan september til að taka upp myndband af söluhrossum. Sem síðan birtast á sölusíðunum www.icehorse.is og www.hest.is Áhugasamir hafi samband við Elku í netfangið [email protected] eða í síma 8638813. Samtök hrossabænda. Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is