Færslur: 2013 Febrúar26.02.2013 15:03Svínavatni 2013 frestað til 9. mars
Skráningar berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 5. mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi fimmtudaginn 7. mars. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa er verið að borga. Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur. Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Skrifað af selma 23.02.2013 13:29AðalfundurAðalfundur hestmannafélagins Neista verður fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20:30 í Reiðhöllinni Arnargerði. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin Skrifað af selma 22.02.2013 17:56Svínavatn 2013Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur. 22.02.2013 13:27Vetrarleikum frestaðVetrarleikum Neista sem vera áttu á Hnjúkatjörn á sunnudag er frestað um óákveðinn tíma. Mótanefnd Skrifað af selma 18.02.2013 13:17Vetrarleikar NeistaVetrarleikar Neista á Hnjúkatjörn sunnudaginn 24. febrúar kl. 13.00 ![]() ![]() Keppt verður í tölti (opið fyrir alla) í opnum flokki, áhugamannaflokki og unglingaflokki (16 ára og yngri). Einnig verður bæjarkeppni, með firmakeppnisfyrirkomulagi þ.e. riðnar 4 ferðir með frjálsri aðferð. Engin skráningargjöld. Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 22. febrúar. Fram þarf að koma; knapi, hestur og flokkur. Skráningargjald fyrir tölt er kr. 1.000 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 500 fyrir hverja skráningu. Skráningargjöld þarf að greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 eða á staðnum (í peningum, ekki tekið við kortum). Ef ísinn á Hnjúkatjörn verður ekki nógu góður á sunnudag verður mótið fært og látið vita hér á vefnum. Mótanefnd Skrifað af selma 18.02.2013 10:56Staðan í mótaröð NeistaNæsta mót í mótaröð Neista er ístölt, en eftir fyrsta mótið í mótaröðinni er staðan svona:
Fleiri en einn voru með sama skor og því stigatalan fengin út frá meðaltalsreikning. Skrifað af HBE 17.02.2013 20:48Grunnskólamót - úrslitFyrsta mótið í Grunnskólamótaröðinni var haldið í dag í Reiðhöllinni á Blönduósi. Það er alltaf jafn gaman að sjá hvað krakkarnir eru liprir reiðmenn og renna léttilega í gegnum þrautabrautina, smalann og skeiðið. Æskulýðsnefndir félaganna standa að þessari mótaröð. Þátttökurétt hafa börn og unglingar á grunnskólaaldri á svæðinu og keppa þau í nafni þess skóla sem þau stunda nám við, skólarnir eru alveg ótengdir mótunum að öðru leiti. Varmahlíðarskóli er efstur eftir 1. mót, er með 23 stig en hinir skólarnir fylgja fast á eftir, Húnavallaskóli er með 21 stig, Gr. Húnaþings vestra er með 17 og Blönduskóli með 16 stig. Úrslit í dag urðu þessi: Þrautabraut 1. - 3. bekkur Tvær skvísur mættu í þrautabrautina eða smalann öllu heldur því þær fóru bara smalabrautina alla og fóru létt með það :)
Smali 4. - 7. bekkur Lilja María, Freyja Sól, Guðný Rúna, Sólrún Tinna og Lara Margrét Karitas, Eysteinn Tjörvi, Edda Felicia og Ásdís Freyja
Smali 8. - 10. bekkur Anna Baldvina, Hjördís, Magnea Rut, Leon Paul og Ásdís Brynja Eva Dögg, Lilja, Anna Herdís og Ragna Vigdís
Skeið
Hestamannafélagið Neisti og Æskulýðsnefnd Neista vill þakka öllum keppendum, starfsmönnum, foreldrum og áhorfendum kærlega fyrir skemmtunina og hjálpina og fyrir frábæran dag. Fleiri myndir í myndaalbúmi og Hjálmar Kárdal sendir okkur myndir fljótlega. Skrifað af selma 15.02.2013 21:26Grunnskólamót - ráslistarSkráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, og skal greiða á staðnum áður en mót hefst
Skrifað af selma 14.02.2013 23:05Úrslit úr T7Mjög góð skráning var á tölt T7 mót í Reiðhöllinni í kvöld þar sem úrslit urðu þessi: Unglingaflokkur, 16 ára og yngri: 1. Sigurður Bjarni og Prinsessa frá Blönduósi 2. Lilja Maria og Hamur frá Hamrahlíð 3. Sólrún Tinna og Gjá frá Hæl 4. Ásdís Brynja og Eyvör frá Eyri 5. Hrafnhildur og Funi frá Leysingjastöðum 6. Ásdís Freyja og Hrókur frá Laugabóli Áhugamannaflokkur: 1. Rósanna og Fáni frá Lækjardal 2. Jóhannes Geir og Hula frá Efri-Fitjum 3. Höskuldur og Börkur frá Akurgerði 4. Sonja Suska og Feykir frá Stekkjardal 5. Magnús og Dynur frá Sveinsstöðum 6. Þórólfur Óli og Þokki frá Blönduósi 7. Karen Ósk og Þula frá Ármóti Opinn flokkur: 1. Hjörtur og Syrpa frá Hnjúkahlíð 2. Maríanna og Sóldögg frá Kaldárbakka 3. Ægir og Gítar frá Stekkjardal 4. Tryggvi og Sóldís frá Kommu 5. Greta B. og Nepja frá Efri-Fitjum 6. Rúnar Örn og Kasper frá Blönduósi 7. Þórður og Áfangi frá Sauðanesi Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir eða Didda í Litladal, eins og hún er alltaf kölluð, gaf 1. verðlaun í öllum flokkum en það voru hestastyttur sem hún hannaði og tálgaði. Hún gaf þær í tilfefni 70 ára afmælis Neista í minningu föður hennar Jóns Jónssonar frá Stóradal. Færum við henni bestu þakkir fyrir. Skrifað af selma 14.02.2013 12:10Skemmtileg heimsóknÞau voru með skemmtilega sýnikennslu Hólanemarnir Bjarni Sveinsson, Carrie Lyons Brandt og Sara Pesenacker í gærkvöldi þegar þau komu og voru með fyrirlestur og sýnikennslu í Reiðhöllinni. Þau fóru yfir hvernig mætti notfæra sér fimiþjálfun til þess að bæta gangtegundir hestsins. Fyrirlestur með miklum tilþrifum hjá Bjarna. Mjög góð þátttaka var á kynninguna og var góður rómur gerður af heimsókninni. Carrie Lyons Brandt og Sporður frá Bergi. Sara Pesenacker og Hnokki frá Skiðbakka. Bjarni Sveinsson og Breki Frá Eyði-Sandvík Þau svifu um salinn með leikandi létta hestana og sögðu frá þjálfuninni í leiðinni sem komst vel til skila. Virkilega skemmtileg og fræðandi heimsókn, kærar þakkir fyrir. Skrifað af selma 13.02.2013 23:13RáslistinnRásröðin í T7 14. feb. kl. 20.00 Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum).
Skrifað af selma 11.02.2013 14:22Fræðslukvöld Hólanema í ReiðhöllinniFrá æfingum upp í afköst Notkun fimiþjálfunar til þess að bæta gangtegundir Fræðslukvöld Hólanema miðvikudaginn 13. febrúar. Þau Bjarni Sveinsson, Carrie Lyons Brandt og Sara Pesenacker
Skrifað af selma 09.02.2013 15:39Mótaröð NeistaFyrsta mót í Mótaröð Neista verður fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20.00 í Reiðhöllinni Arnargerði. Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 12. febrúar. Keppt verður í T7, 1 hringur hægt tölt og 1 hringur frjáls ferð, í opnum flokki, áhugamannaflokki og unglingaflokki þ.e. 16 ára og yngri. Fram þarf að koma; knapi og hestur, flokkur og uppá hvaða hönd er riðið. Skráningargjald er 1.000 kr fyrir hverja skráningu. Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum). Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum). 10. bekkur í Blönduskóla verður með kaffi og eitthvað gott til sölu í sjoppunni. Mótaröð Neista er stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem 3 stigahæstu keppendur í hverjum flokki fyrir sig hljóta verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum. Mótanefnd Skrifað af selma 07.02.2013 12:13Grunnskólamóti - Þrautabraut/Smali/SkeiðGrunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra verða: 17. febrúar á Blönduós - þrautabraut, smali og skeið 10. mars á Hvammstanga - fegurðarreið, tölt og skeið 21. apríl á Sauðárkróki - fegurðarreið, tvígangur, þrígangur, fjórgangur og skeið Þrautabraut, smali og skeið verða í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 17. febrúar kl. 13.00 Keppnisgreinar eru: Skráningar þurfa að hafa borist fyrir Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests og uppruni, aldur, litur og keppnisgrein. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir fyrstu skráningu, og skal greiða á staðnum áður en mót hefst
smalabraut 4. - 10. bekkur þrautabraut 1. - 3. bekkur Grunnskólamót
Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt. 1. Mótið heitir Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. 2. Keppnisgreinar eru: Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðnir tveir hringir á annað hvort brokki eða tölti og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Þrígangur 4. - 7. bekkur. Riðið einn hringur brokk, einn hringur tölt og fet ½ hringur. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál, þar skal stöðva hestinn og halda svo áfram. Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Ef tunna dettur er bætt við 4 sekúndum og ef tunnu er sleppt bætast við 4x4 sekúndur. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Bannað er að fara á stökki yfir pallinn. Ef hleypt er yfir pallinn bætast við 4x4 sekúndur. Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir . ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16 Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . ¨ Riðin B og A úrslit ef keppendur eru fleiri en 16
Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. ¨ Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.
3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Heimilt er að sami hestur sé skráður í 2 greinar. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur 6. Keppendur í tví- og þrígangi í 4. - 7. bekk. verða að velja annað hvort tvígang eða þrígang að keppa í. Óheimilt að sami keppandi keppi í báðum greinum. 7. Í tölti, tví-, þrí- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 8. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 9. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 10. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur.
Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis. 1. sæti gefur 10 stig til viðkomandi skóla Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig Skrifað af selma 03.02.2013 11:53Svínavatn 2013
"Laugardaginn 2. mars verður Svínavatn 2013 haldið á Svínavatni í
A-Hún. Keppt verður í A og B flokki og opnum flokki í tölti.
Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða
nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins," segir í tilkynningu frá aðstandendum.
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is