Færslur: 2013 Nóvember30.11.2013 21:42Uppskeruhátíðin
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var 23. nóvember sl. og eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur.....
Hryssur 4 vetra
5 vetra
7 vetra og eldri
Stóðhestar 4 vetra
7 vetra og eldri
Sölufélagsbikarinn fær hæst dæmda hryssa á héraðsýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Búnaðarbankabikarinn fær hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns.
Fengsbikarinn - bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns. Kompás frá Skagaströnd Bikar til minningar um Magnús Blöndal frá Skagaströnd Besti frá Upphafi
Á árinu 2013 var glæsihesturinn Freyðir frá Leysingjastöðum áberandi, gerði það mjög gott á keppnisvellinum ásamt knapa sínum Ísólfi Líndal Þórissyni. Á Fjóðungsmóti á Kaldármelum unnu þeir B-flokki gæðinga með einkunina 9,01. Ísólfur og Freyðir gerðu það líka gott á Íslandsmóti í Borgarnesi en þar uður þeir í 5.-6. sæti í tölti með einkunina 8,28 eftir að hafa unnið sig upp úr B-úrslitum. Þeir kepptu einnig í fjórgangi og urðu í 5. sæti með einkunina 8,0.
Hreinn og Hjördís hafa stundað hrossarækt í áratugi og mörg góð hross komið frá þeim, má þar meðal annars nefna Stíganda og Sindra Stígandason.
Sindri og Ísólfur (mynd af heimasíðu Lækjamóts) Stígandi, myndir www.stigandi.us Til hamingju Leysingjastaðir.
25.11.2013 09:11Frá æskulýðsnefndSkráning er hafin fyrir námskeið vorannar Áætlað er að námskeið hefjist um miðjan janúar, boðið verður upp á námskeið í Knapamerkjum 1-5 og almenn reiðnámskeið fyrir börn yngri en 12 ára (fyrir vana og óvana). Vinsamlegast sendið skráningarupplýsingar á netfangið [email protected] þar sem fram kemur nafn, kennitala og námskeið sem óskað er eftir. Skráningu lýkur föstudaginn 13. desember 2013. Æskulýðsnefndin stefnir á að bjóða upp á styttri námskeið á önninni, fylgist með á www.neisti.net Hestamenn sem óska eftir sérstökum námskeiðum eru beðnir um að koma því á framfæri við nefndina.
Fyrir hönd Neista Æskulýðsnefnd Skrifað af Ásdís 13.11.2013 20:52MótanefndarfundurMótanefnd mun halda fund næstu daga hvar farið verður yfir mót vetrarins. Í vor óskuðum við eftir hugmyndum frá fólki og eins ef að það hefði einhverjar óskir varðandi mótahaldið. Nokkrar tillögur skiluðu sér og viljum við þakka fyrir það. Ef að einhverjir vilja bæta við það þá endilega skilið því inn til Höskuldar í netfangið [email protected] og svo má alltaf hringja líka í síma 894-8710. kv Mótanefnd Skrifað af HBE 12.11.2013 21:29Uppskeruhátíð búgreinafélaga og hestamanna
Uppskeruhátíð búgreinafélaganna í Austur-Húnavatnssýslu og hestamanna verður haldin laugardaginn 23. nóvember næstkomandi í Húnaveri. Húsið opnað klukkan 19:30 með fordrykk í boði SAH Afurða og borðhald hefst klukkan 20:30. Trukkarnir leika fyrir dansi. Miðapantanir verða hjá eftirtöldum: Aðalbjörgu og Ragnari s: 452 4663 / 868 4917 / 893 0466 Kristínu Jónu og Val s: 452 4506 / 846 8745 / 867 9785 Gróu og Sigga s: 452 4958 / 892 7192 / 863 4577 Jónu Ólafs s: 897 8216 Miðar verða seldir á staðnum (Posi). Skráningu lýkur sunnudagskvöldið 17. nóvember. Sætaferðir eru áætlaðar frá N1 kl. 19:15 ef næg þátttaka fæst. Þau sæti skulu pöntuð um leið og miðar. Skrifað af selma 04.11.2013 08:12Hrossabændur í A-Hún
Aðalfundur Samtaka Hrossabænda í A- Hún verður haldinn í Sjálfstæðissalnum á Blönduósi fimmtudaginn 7.nóvember 2013 og hefst stundvíslega kl. 20:30
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is