Færslur: 2014 Febrúar09.02.2014 09:55Ístölt - RáslistiRáslisti Ístöltsins á Hnjúkatjörn sem hefst kl. 14.00 í dag.
Skrifað af selma 06.02.2014 20:26Ístöltið 9. febrúar á Hnjúkatjörn
Fyrsta mót vetrarins í Mótaröð Neista, ístöltið, verður haldið á Hnjúkatjörn nk. sunnudag 9. febrúar kl.14.00 ef veður og færð leyfa en því var frestað um sl. helgi vegna slæms veðurútlits. Keppt verður í 3 flokkum í mótaröðinni eins og verið hefur.
2 keppendur eru inn á í einu. Riðinn er einn leggur hægt tölt og til baka tölt með hraðabreytingum. Aftur tölt með hraðabreytingum og svo yfirferðartölt til baka. Alls fjórar ferðir. Úrslit eru riðin í hverjum flokki fyrir sig strax eftir forkeppni. Fimm knapar í úrslitum, með þeirri undantekningu þó ef að einhverjir eru jafnir að stigum. Skráningargjald er kr. 1.500 fyrir fyrstu skráningu og 1.000 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 1.000 fyrir hverja skráningu. Muna að taka fram IS númer hests og kennitölu knapa líka. Keppendur skrá sig í flokka í upphafi keppni og haldast í þeim flokkum út mótaröðina, með þeim möguleika þó að keppendur mega skrá sig upp um flokk hvenær sem er kjósi þeir það en þá er ekki heimilt að fara til baka og ekki taka þeir með sér þau stig sem að þeir hafi til unnið. Annars gilda almennt reglur LH, og er bent sérstaklega á reglur um fóta,- og beislisbúnað !
Af gefnu tilefni minnum við á að fram þarf að koma IS númer hests og kt. knapa. Þeir sem skráðu sig fyrir síðasta mót þurfa að skrá sig aftur.
Mótanefnd 06.02.2014 10:29Svínavatn 2014
Laugardaginn 1. mars verður mótið haldið á Svínavatni í A-Hún. Keppt verður í A og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti. Fyrirkomulag með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur á hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins.
Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is