Færslur: 2015 Apríl26.04.2015 20:22Uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista
Í dag 26. apríl var uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista. Engin sýning var þar sem veðrið var leiðinlegt en foreldrar mættu með kökur og úr varð heljarinnar veisla, mætingin var frábær.
Reiðnámskeið hafa verið á hverjum vetri í reiðhöllinni síðan 2002 en þá var fyrsta æskulýðsnefndin starfsett og varð þá strax fullt á öll námskeið. Reiðhöllin var tekin í notkun í mars 2000. Í fyrstu æskulýðsnefndinni, veturinn 2002, voru Finnur Karl Björnsson, Jón Ragnar Gíslason og Alda Björnsdóttir og markmið nefndarinnar var: Að kenna hestfærum börnum og unglingum undirstöðuatriði í almennri reiðmennsku, ásetu og stjórnun, hugsanlega með keppni og/eða sýningar að leiðarljósi ef við á.
Í dag voru viðurkenningar og gafir afhentar til þeirra barna og unglinga sem voru á námskeiðum, en í vetur voru hefðbundin námskeið fyrir krakka yngri en 12 ára og svo knapamerki 1, 2, 3, 4 og 5. Knapamerkin hafa verið kennd frá árinu 2007. Nú í vor luku 3 börn og 1 fullorðinn prófi í knapamerki 1, 2 unglingar og 2 fullorðnir í knapamerki 2, 2 unglingar og 1 fullorðinn í knapamerki 3, en knapamerki 3 er kennt á 2 árum og eru 4 í seinni hópnum. Knapamerki 4 er líka kennt á 2 árum og þar er 1 unglingur.
Þrír fullorðnir luku prófi í knapamerki 5 og eru þau þau fyrstu til að ljúka knapamerki 5 á Blönduósi sem er frábært.
Sá yngsti og elsti á námskeiðum í vetur, Magnúsarnir tveir. Þeir eiga framtíðina fyrir sér í hestamennskunni. Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum er á sínum 2. vetri á reiðnámskeiðum og Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, alls ekki hættur en lauk prófi í knapamerki 5 með glæsibrag.
Heiðrún fær þakklætisvott frá nemendum í knapamerki 5.
Helga Thoroddsen sem er höfundur knapamerkjanna (vor 2004) en lét af störfum sem verkefnisstjóri þeirra haustið 2014 kom og dæmi hjá okkur núna sem og áður. Hún hefur dæmt í langflestum prófunum. Hún er því búin að fylgjast með öllum þeim sem hafa farið í gegnum knapamerkin hjá félaginu og nú síðast þeim þrem fræknu í próf í knapamerki 5. Eftir að hafa fylgst með "okkar" fólki í gegnum allt knapamerkjakerfið 1 til 5, segir hún að þau sanni það að Knapamerkin eru fyrir alla og geta unnið kraftaverk fyrir knapa þegar rétt er að málum staðið. Það sem einkenndi prófin hjá Magga, Gumma og Siggu voru prúðmannlegir knapar með rétt viðhorf gagnvart sjálfum sér og hestum sínum og hestar í andlegu og líkamlegu jafnvægi. Kennarinn þeirra Heiðrún Ósk Eymundsdóttir á heiður skilinn fyrir það yfirbragð sem var á knöpum og hestum - og að sjálfsögðu aðrir reiðkennarar sem hafa komið að málum í gegn um árin. Þegar saman fara góð reiðkennsla, góðir nemendur og góðir hestar er greinilegt að árangurinn skilar sér. Þökkum við henni kærlega fyrir að hafa komið og dæmt hjá okkur í gegnum árin.
Enn einu frábæru vetrarstarfi hjá félaginu er lokið. Til hamingju öll sem voruð á námskeiðum og öll sem tókuð próf. Frábær dagur, takk öll sem komuð og gerðuð daginn skemmtilegan. Vonandi sjáumst við að ári á námskeiðum hjá Neista.
Skrifað af Selmu 26.04.2015 20:04Próf í knapamerki 3 og 4
17. apríl voru próf í knapamerkjum 3 og 4 og gengu þau vel fyrir sig. Hér eru Lilja og Sólrún með Pétri kennara. Þær voru að fara í próf í knapamerki 3.
Skrifað af Selmu 26.04.2015 12:53Frá æskulýðsnefnd NeistaÞar sem veðrið er ekki með besta móti, verður sýningu barnastarfs Neista frestað um óvkeðinn tíma. Hins vegar verður kaffi og með því á kaffistofu Reiðhallarinnar kl. 16.00 í dag. Þar verða viðurkenningar og gafir afhentar til þeirra barna og unglinga sem voru á námskeiðum hjá Neista í vetur.
Allir velkomnir.
Skrifað af Selma 24.04.2015 21:29Uppskeruhátíð Neista
Frá æskulýðsnefnd Neista
Uppskeruhátíð nemenda knapamerkja og barnastarfs Neista verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi og hefst hún klukkan 16:00. Foreldrar bjóða upp á kaffisamsæti að hátíðinni lokinni. Allir eru velkomnir.
Skrifað af Selmu 23.04.2015 20:07Knapamerki 5
Mikið megum við vera stolt af glæsilegum árangri hjá fólkinu okkar í knapamerki 5.
Pétur og Heiðrún í Saurbæ hafa kennt knapamerki 5 í fyrra og í vetur en þau segja að hestakosturinn skipti miklu máli . Hestarnir þurfa ekki að vera neitt sérstaklega flottir en vel tamdir og ganghreinir. Þetta kemur mjög vel í ljós á 5 stiginu, þeir knapar sem hafa byggt upp sína hesta stig af stigi allt frá byrjun eru að ná mestum árangri. Maggi, Sigga og Gummi, innilega til hamingju með frábæran árangur!
Skrifað af Selmu 22.04.2015 17:02Fræðslufundur með Þorvaldi Kristjánssyni í Dæli í Víðidal
Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur/ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML flytur erindið „Ganghæfni íslenskra hrossa - áhrif sköpulags og skeiðgens" í Dæli í Víðidal fimmtudaginn 23.apríl (sumardaginn fyrsta ) kl. 20:30. Erindið snýst um samband byggingar og hæfileika íslenskra hrossa og áhrif skeiðgensins á ganglag hestsins. Fundurinn er öllum opinn og hestamenn hvattir til að fjölmenna. Skrifað af Selmu 21.04.2015 19:58Hrossaræktendur athugið !!
Skrifað af Selmu 17.04.2015 14:51Próf í knapamerkjum
Síðastliðinn föstudag, þ.e. fyrir viku, voru fyrstu prófin í knapamerkjunum. Þeir sem voru í knapamerkjum 1 og 2 tóku próf og auðvitað gengu þau glimrandi vel. Próf í knapamerkjum 3, 4 og 5 verða á næstunni en námskeiðahaldi er að ljúka þennan veturinn og verður uppskeruhátíð þann 26. apríl með sýningu nemenda, sýna okkur hinum hvað þau hafa lært í vetur. Að sýningu lokinni verður boðið uppá kaffi á kaffistofunni
Þessi þrjú voru mætt í anddyrið í próf í knapamerki 1 kl 18.00 og biðu róleg eftir Helgu prófdómara.
Knapamerki 1, Hlíðar, Bjartmar og Hugrún.
Lisa tók próf bæði í knapamerki 1 og 2.
Í knapamerki 2 voru mætt Guðný, Hreinn og Ásdís
Skrifað af Selmu 16.04.2015 12:46Mótaröð Neista, úrslit lokamót og stigakeppni
Lokamótið í mótaröð Neista 2015 fór fram í Reiðhöllinni Arnargerði síðastliðið miðvikudagskvöld. Úrslit urðu þessi:
Tölt ungmenna 17 ára og yngri
1.Ásdís Brynja Jónsdóttir - Vigur frá Hofi 6,3/6,7 2.Aron Freyr Sigurðsson - Hlynur frá Haukatungu Syðri 5,7/6,50 3.Lara Margrét Jónsdóttir - Öfund frá Eystra Fróðholti 4,8/5,7 4.Guðrún Tinna Rúnarsdóttir - Kasper frá Blönduósi 5,0/5,3 5.Sólrún Tinna Grímsdóttir - Hespa frá Reykjum 4,8/5,3
Tölt opinn flokkur
1.Tryggvi Björnsson - Sóldögg frá Áslandi 6,3/7,0 2.Eline Schriver - Króna frá Hofi, 5,5/6,5 3.Svana Ingólfsdóttir - Þyrnir frá Litlu-Gröf 5,3/6,3
Fimmgangur opinn flokkur
1.Eline Schriver - Laufi frá Syðra-Skörðugili 5,6/6,6 2.Tryggvi Björnsson - Blær frá Miðsitju 7,6/6,5 3.Svana Ingólfsdóttir - Hespa frá Kristnesi 4,0/5,4
Fimmgangur áhugamenn
1.Kristín Jósteinsdóttir - Abel frá Sveinsstöðum 4,3/4,8 2.Lísa Inga Haelterlein - Kesja frá Steinnesi 5,1/4,7 3.Magnús Ólafsson - Dynur frá Sveinsstöðum 4,6/3,2
Tölt áhugamenn
1.Atli Steinar Ingason - Spuni frá Hnjúkahlíð 6,5/7,2 2.Hörður Ríkharðsson - Djarfur frá Helguhvammi 5,5/6,3 3.Hjörtur Karl Einarsson - Smella frá Hnjúkahlíð 5,7/6,3 4.Lísa Inga Haelterlein - Kesja frá Steinnesi 5,5/5,8 5.Agnar Logi Eiríksson - Njörður frá Blönduósi 5,3/5,7
Stigakeppnin félagsmanna í Neista
Ungmenni 17 ára og yngri. 1.Ásdís Brynja Jónsdóttir 32 stig 2.Aron Freyr Sigurðsson 28 -stig 3.Lara Margrét Jónsdóttir 19 stig 4.Guðrún Tinna Rúnarsdóttir 17 stig
Áhugamenn 1.Magnús Ólafsson 34,5 stig 2.Lísa Inga Haelterlein 19 stig 3.Harpa Hrönn Hilmarsdóttir 18 stig
Opinn flokkur 1.Eline Schriver 38 stig 2. Svana Ingólfsdóttir 26 stig 3. Jón Kristófer Sigmarsson 10 stig
Mótanefnd Skrifað af selmu 07.04.2015 10:58Vinamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra
verður haldið í reiðhöllinni Þytsheimar á Hvammstanga sunnudaginn 12. apríl kl 13:00. Keppt verður í fegurðarreið 7-9 ára, tölt T7 10-13 ára og tölt T3 14-16 ára. Því miður er ekki hægt að keppa í skeiði þar sem aðstæður fyrir utan höllina leyfa það ekki. Skráningar þurfa að berast fyrir kl 24:00 fimmtudaginn 9. apríl. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda – fæðingarár – hestamannafélag - nafn hests, uppruni og litur, upp á hvora hönd er riðið. Skráningar sendist á [email protected] Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað áður en mótið hefst (kort ekki tekin). Keppnisreglur eru að finna á heimasíðu hestamannafélaganna. Skrifað af Selmu 06.04.2015 20:21Lokamóti frestað um viku
Keppni hefst kl.19.00. Mótið er opið og hvetjum við sem flesta til að taka þátt og hafa þetta lokamót skemmtilegt. Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir kl. 22:00 mánudagskvöldið 13. apríl. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur og IS númer og í hvaða flokki knapi ætlar að keppa.
Keppt er í 3 flokkum. • Flokkur 17 ára og yngri Skráningargjöld eru 1.500 kr. Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).
Mótanefnd Skrifað af Selmu 02.04.2015 20:01Mótaröð neista - tölt og fimmgangur
Þá er komið að lokakeppni Mótaraðar Neista. Keppt verður í tölti T1 og fimmgangi nk. miðvikudagskvöldið 8 apríl. Keppni hefst kl.19.00. Mótið er opið og hvetjum við sem flesta til að taka þátt og hafa þetta lokamót skemmtilegt. Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir kl. 22:00 þriðjudagskvöldið 7. apríl. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur og IS númer og í hvaða flokki knapi ætlar að keppa. Keppt er í 3 flokkum. • Flokkur 17 ára og yngri • Áhugamannaflokkur • Opinn flokkur Skráningargjöld eru 1.500 kr. Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).
Mótanefnd Skrifað af Selmu
Flettingar í dag: 762 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 925995 Samtals gestir: 88422 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:35:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is