Færslur: 2015 Júní21.06.2015 18:40Landsmót 50+ dagana 26. - 28. júní á Blönduósi
Eins og allir vita þá er Landsmót 50+ dagana 26. - 28. júní á Blönduósi. Þar er meðal annars keppt í hestaíþróttum. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti í kvöld 21. júní. Allir sem eru 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum 5. Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður á Blönduósi dagana 26.-28. júní, hvort sem þeir eru í félagi eða ekki. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald 3.500 kr. og öðlast þar með þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Á mótinu verður jafnframt boðið upp á fyrirlestra um heilbrigðan lífsstíl ásamt heilsufarsmælingum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins á síðunni www.umfi .is. Skráningin fer fram á skraning.umfi.is. Markmið mótsins er að skapa fólki 50 ára og eldri vettvang til að koma saman og keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum og kynna um leið þá möguleika sem eru í boði til þess. Skrifað af Selmu 16.06.2015 16:41Hátíðardagskrá á 17. júní
Dagskrá hátíðarhalda á Blönduósi þann 17. júní
Skrifað af Ásdís 10.06.2015 23:15Félagsmót Neista 22. ágúst
Mótanefnd hefur ákveðið að Félagsmót Neista verði haldið 22. ágúst næstkomandi. Nánari tilhögun og keppnisgreinar verða auglýstar síðar. Mótanefndin.
Skrifað af Selmu
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is