Færslur: 2018 Janúar29.01.2018 13:34Folaldasýning 2018 - Úrslit
Hestfolöld 1. Svarthöfði frá Skagaströnd, brúnskjóttur F: Þristur frá Feti M: Þyrla frá Skagaströnd Rækt. Friðþór Norðkvist Sveinsson Eig. Friðþór Norðkvist og Þorlákur Sigurður Sveinssynir
2. Hringur frá Blönduósi, jarptvístjörnóttur, hringeygður með sokk á afturfæti. F: Fannar frá Blönduósi M: Penta frá Blönduósi Rækt. og eig. Eyjólfur Guðmundsson
3. Fjölnir frá Hæli, brúnn F: Mugison frá Hæli M: Kolfinna frá Blönduósi Rækt. og eig. Jón Kristófer Sigmarsson
4. Drangur frá Steinnesi, rauðstjörnóttur F: Draupnir frá Stuðlum M: Ólga frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Órói frá Blönduósi, rauðskjóttur F: Órator frá Blönduósi M: Iða frá Blönduósi Rækt. og eig. Guðmundur Sigfússon
6. Gauti frá Geitaskarði, bleikur F: Reyr frá Efri-Fitjum M: Reikistjarna frá Geitaskarði Rækt. og eig. Sigurður Örn Ágústsson og Sigurður Örn E. Levy
Merfolöld 1. Rós frá Blönduósi, rauðskjótt F: Fannar frá Blönduósi M: Kjarnorka frá Blönduósi Rækt. og eig. Eyjólfur Guðmundsson
2. Olga frá Blönduósi, brún F: Órator frá Blönduósi M: Aska frá Stóra-Búrfelli Rækt. og eig. Guðmundur Sigfússon
3. Fantasía frá Hæli, brúnstjörnótt F: Hjari frá Hofi á Höfðaströnd M: Eyvör frá Hæli Rækt. og eig. Jón Kristófer Sigmarsson
4. Ásynja frá Steinnesi, moldótt F: Oddi frá Hafsteinsstöðum M: Sigyn frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Melodía frá Köldukinn 2, fífilbleik F: Óskasteinn frá Íbishóli M: Mýra frá Ármóti Rækt. og eig. Karen Ósk Guðmundsdóttir
Ungfolar 1. Máni frá Krossum, sótrauður stjörnóttur, f. 2015 F: Bergsteinn frá Akureyri M: Birta frá Dalvík Rækt. og eig. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
2. Nn frá Steinnesi, hvítingi, f. 2016 F: Ljósvíkingur frá Steinnesi M: Albína frá Glaumbæ II Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
3. Lager frá Skagaströnd, dökkjarpur, f. 2016 F: Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M: Þökk frá Skagaströnd Rækt. Þorlákur Sigurður Sveinsson Eig. Þorlákur Sigurður Sveinsson og Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
4. Töfri frá Steinnesi, rauðstjörnóttur, f. 2016 F: Ölnir frá Akranesi M: Sunna frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
5. Leifur frá Steinnesi, rauðstjörnóttur, f. 2016 F: Smári frá Steinnesi M: Árdís frá Steinnesi Rækt. og eig. Magnús Jósefsson
Kosningin um álitlegasta folaldið að mati áhorfenda fór þannig að Svarthöfði frá Skagaströnd og Rós frá Blönduósi hlutu jafn mörg atkvæði. Það var því sett í hendur dómarans að skera úr um hvort skildi sigra, niðurstaðan var sú að Rós frá Blönduósi væri álitlegust enda afar fínleg og léttstíg.
Hrossaræktarsamband A-Hún þakkar eigendum og áhorfendum fyrir skemmtilegan dag. 29.01.2018 09:30Reiðnámskeið með Artemisiu Bertus á SauðárkrókiFT norður mun standa fyrir reiðnámskeiði í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki 10.-11. febrúar næstkomandi. Námskeiðið er opið öllum sem vilja bæta sig og sinn hest. Misa hefur náð frábærum árangri um árabil, bæði á kynbóta- og keppnisbrautinni, auk þess að hafa starfað sem kennari við Hólaskóla. Nefna má að hún stóð uppi sem sigurvegari Meistaradeildarinnar fyrir sunnan 2012, og allir muna eftir frábærum sýningum hennar í gæðingafimi og fjórgangi á hestinum Korgi frá Ingólfshvoli. Síðastliðið sumar sigraði Misa fjórganginn á Íslandsmótinu með yfirburðum með 8,27 í einkunn og þar að auki reið hún til úrslita á heimsmeistaramótinu í Hollandi. Kenndir verða tveir einkatímar laugardag og sunnudag. Verð: Fyrir FT félaga 20.000 Fyrir utanfélagsmenn 25.000 Skráning hjá [email protected] 21.01.2018 21:35Vel heppnuð vinnusýningÞað var vel mætt á vinnusýningu Benna Líndal í reiðhöllinni í gær en rúmlega 70 manns komu til að fylgjast með þjálfunaraðferðum hans. Benni kom með fjögur hross á mismunandi tamningastigum og sýndi okkur aðferðir sem hann notar við vinnu með ung hross og meira tamin hross. Gaman var að fylgjast með samspili knapa og hesta sem einkenndist af léttleika og trausti. Við þökkum Benna kærlega fyrir komuna. Einnig þökkum við áhorfendum fyrir komuna, það var virkilega gaman að fá svona góða mætingu og vonandi gaf þetta tóninn fyrir komandi viðburði.
16.01.2018 11:50Vinnusýning með Benna LíndalMinnum á að Benedikt Líndal, tamningameistari, verður með vinnusýningu í reiðhöllinni laugardaginn 20. janúar klukkan 16:00. Benedikt kemur með nokkur hross og leiðir áhorfendur í gegnum fróðlegt og skemmtilegt vinnuferli. Verð (ath. enginn posi)
Hlökkum til að sjá sem flesta ! 12.01.2018 09:42Folaldasýning 2018Nú er komið að foladasýningu 2018 og verður hún með svipuðu sniði og í fyrra.
09.01.2018 08:42Mót vetrarinsHér koma dagsetningar á mótum vetrarins.
16. febrúar - Fjórgangur og T7 10. mars - Ísmót 23. mars - Tölt 6. apríl - Fimmgangur og slaktaumatölt
Nánar auglýst síðar. Mótanefnd Skrifað af Harpa 03.01.2018 18:44Vinnusýningu með Benna Líndal frestað !Vegna forfalla verðum við að fresta vinnusýningu Benna Líndal til 20. janúar. Nánar auglýst síðar. 03.01.2018 11:26Kynningarfundur um æskulýðsstarfiðMinnum á að kynningarfundur um æskulýðsstarf vetrarins verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, klukkan 17:00 í reiðhöllinni. Gulla og Nonni frá Hestaleigunni Galsa ætla að koma ef einhverjir hafa áhuga á að leigja hest hjá þeim fyrir námskeiðin. Guðrún Rut fer yfir námskeiðin og æskulýðsnefndin segir frá öðru starfi. Síðasti skráningardagur á námskeiðin er 6. janúar.
Skrifað af Harpa
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is