Færslur: 2019 September04.09.2019 14:22Þjálfaramenntun ÍSÍHaustfjarnám 2019 þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 23. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi. Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 20. sept. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari. Slóð á skráningu á bæði stig í haustfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019: http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/ Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514- 4000 & 863-1399 eða á [email protected]
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is