Færslur: 2020 Janúar29.01.2020 16:55Úrslit foalda- og ungfolasýningarFolalda- og ungfolasýning Hestamannafélagsins Neista og Samtaka hrossabænda í A-Hún fór fram í reiðhöllinni á Blönduósi sunnudaginn 26. janúar. Það var létt yfir mönnum og hrossum og veðrið lék við okkur. Alls voru 23 folöld mætt til leiks auk nokkurra ungfola og dómari var Eyþór Einarsson. Hestamannafélagið Neisti og Samtök hrossabænda í A-Hún þakka kærlega fyrir þátttökuna, áhorfið og aðstoðina. Jafnframt vilja félögin sérstaklega þakka þeim sem styrktu okkur í formi folatolla og þakka Líflandi fyrir þá vinninga sem þeir létu okkur í té. Folatollar undir eftirfarandi hesta voru í vinning: Goði frá Bjarnarhöfn - Ae. 8,57 Bósi frá Húsavík - Ae. 8,54 Hlekkur frá Saurbæ - Ae. 8,48 Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 - Ae. 8,37 Borði frá Fellskoti - Ae. 8,24 Farsæll frá Litla-Garði - Ae. 8,21 Steinar frá Stíghúsi - Ae. 8,13 Galdur frá Geitaskarði - Ae. 8,00 Þeir folatollar sem okkur voru færðir komust allir í góðar hendur og verða vonandi til þess að færa okkur flotta gripi fyrir framtíðar sýningar. Úrslit í flokki hestfolalda: 1.sæti: Kveikur frá Blönduósi F. Mugison frá Hæli M. Aska frá Stóra-Búrfelli Eigandi og ræktandi: Guðmundur Sigfússon 2. sæti: Klakkur frá Blönduósi F. Borði frá Fellskoti M. Mýra frá Ármóti Eigandi og ræktandi: Guðmundur Sigfússon 3. sæti: Kolfreyr frá Mánaskál F. Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M. Perla frá Seljabrekku Ræktendur og eigendur: Kolbrún Á. Guðnadóttir og Atli Þór Gunnarsson Úrslit í flokki merfolalda: 1. sæti: Alma frá Blönduósi F. Arfur frá Blönduósi M. Penta frá Blönduósi Eigendur og ræktendur: Eyjólfur Guðmundsson og Sigríður Grímsdóttir 2. sæti: Alúð frá Mánaskál F. Skjár frá Skagaströnd M. Assa frá Þóroddsstöðum Ræktendur og eigendur: Kolbrún Á. Guðnadóttir og Atli Þór Gunnarsson 3. sæti: Dásemd frá Hvammi 2 F. Draupnir frá Stuðlum M. Esja frá Hvammi 2 Eigandi og ræktandi: Sonka Suska Úrslit ungfola: Tveggja vetra: 1. sæti: Prins frá Skagaströnd F. Eldur frá Naustum III M. Ína frá Skagaströnd Ræktandi og eigandi: Kristín Birna Guðmundsdóttir Þriggja vetra: 1. sæti: Askur frá Fremstagili F. Hlynur frá Haukatungu Syðri 1 M. Prinessa frá Grundarfirði Ræktendur og eigendur: Sigurður E. Stefánsson og Ágústa Hrönn Óskarsdóttir Skrifað af Kolbrún 23.01.2020 13:37Aðalfundur 2020Aðalfundur 2020Aðalfundur Neista verður haldinn í reiðhöllinni fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 18:00 Dagskrá
Þeir sem vilja gefa kost á sér í stjórn eða nefndir félagsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Magnús s.698-3168 eða gefa kost á sér á fundinum. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta. -Stjórnin Skrifað af Magnús 22.01.2020 00:08Folalda- og ungfolasýningFolalda- og ungfolasýning Hestamannafélagsins Neista og Samtaka hrossabænda í A-Hún verður haldin í reiðhöllinni á Blönduósi sunnudaginn 26. janúar kl. 13. Keppt verður í eftirfarandi flokkum; Hestfolöld Merfolöld 2 vetra folar 3 vetra folar Auk þess velja áhorfendur efnilegasta grip sýningar að sínu mati. Dómari verður Eyþór Einarsson. Skráning berist á [email protected] í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 24. janúar. Fram komi IS nr og nafn grips. Skráningargjald er 2000 kr. Veglegir vinningar í formi folatolla fyrir efstu sæti. Æskulýðsdeild Neista mun vera með veitingasölu í fjáröflunarskyni fyrir vetrarstarfið. 03.01.2020 10:19Reiðnámskeið veturinn 2020
Veturinn 2020 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net. Skráning fer fram hjá Önnu Margréti á [email protected] eða í síma 848-6774. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.
Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 14 skipti (1 x í viku) Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst 20. janúar og lýkur í lok apríl. Kennt á mánud. og/eða miðvikud. Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 9 skipti Ætlað fyrir 7 ára og yngri. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði kl. 16. Námskeið hefst 2. febrúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 5.000 kr.
Reiðnámskeið (keppnisnámskeið) - 4 helgar – börn, unglingar og ungmenni Lögð verður áhersla á vel skipulagða þjálfun og uppbyggingu keppnishests og knapa. Kennslan verður einstaklingsmiðuð, hver knapi setur sér markmið í sinni þjálfun og unnið verður markvisst að þeim markmiðum. Gerðar verða meiri kröfur til ásetu, stjórnunar, jafnvægis og gangskiptinga en á almennu reiðnámskeiði. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrarformi. Námskeiðið fer að miklu leyti fram inní reiðhöll, þangað til veður leyfir að farið verði út á keppnisvöllinn. Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá sem stefna á að taka þátt í Landsmóti hestamanna eða öðrum mótum í vetur og næsta sumar. Kennt verður fyrstu helgi í hverjum mánuði febrúar til maí. Kennsla hefst 1. febrúar. Kennari er Bergrún Ingólfsdóttir Boðið verður upp á eftirfylgni fyrir þá sem fara á Landsmót í framhaldi af þessu námskeiði Verð 20.000 kr.
Knapamerki 1 Verklegi hlutinn:
Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða. Kennt verður einu sinni til tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum 14 verklegir og 6 bóklegir tímar, aldurstakmark er 12 ára Námskeiðið hefst 20. janúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 30.000 kr. með prófi og skírteini Utan félags, verð 45.000 kr. með prófi og skírteini
Knapamerki 2 Verklegi hlutinn:
Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða Kennt verður einu sinni til tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum 16 verklegir og 8 bóklegir tímar Námskeiðið hefst 20. janúar Kennari: Jónína Lilja Pálmadóttir Verð: 35.000 kr. með prófi og skírteini Utan félags, verð 50.000 kr. með prófi og skírteini
Skrifað af Anna Margret Jonsdottir
Flettingar í dag: 843 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926076 Samtals gestir: 88427 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 16:56:28 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is