Færslur: 2022 Nóvember30.11.2022 21:13Hesthúsið við ReiðhöllinaStjórn Reiðhallarinnar ákvað á dögunum að hesthúsið við reiðhöllina yrði leigt út sem félagshesthús í vetur, til félagsmanna Neista.
Hestamannafélagið Neisti mun hafa yfirumsjón með því verkefni og auglýsir það á næstu dögum.
Hægt verður að leiga hest og/eða hesthúspláss og koma þær upplýsingar á næstu dögum.
Stjórn Reiðhallarinnar
Skrifað af Selma 30.11.2022 21:07Frá æskulýðsnefndHestamannafélagið Neisti Reiðnámskeið veturinn 2023 Veturinn 2023 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi: Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar. Skráning fer fram hér https://forms.gle/cEixFMtK7zArgzxGA fyrir 20.12.2022. Almennt reiðnámskeið fyrir börn - 1 x í viku (sunnudagur) Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í byrjun maí (eftir Æskan og Hesturinn). Kennari: Lilja Maria Suska Verð: 15.000kr
Almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna 1 - 1 x í viku (sunnudagur) Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðin sem eru að byrja í hestamennsku eða hafa misst kjarkinn. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir getu. Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr. Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði Ætlað fyrir yngri börn. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf. Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði. Námskeið hefst í byrjun febrúar. Verð: 5.000 kr. ___________________________________________________________________________ Knapamerki 1 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Ath: Nemendur á unglingastigi grunnskóla geta notað knapamerki sem valfag. Einnig safna þau einingum fyrir framhaldsskóla. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000 ___________________________________________________________________________ Knapamerki 2 Fyrirkomulag:
Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is Ath: Nemendur á unglingastigi grunnskóla geta notað knapamerki sem valfag. Einnig safna þau einingum fyrir framhaldsskóla. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 30.000 fullorðin: kr. 40.000 ___________________________________________________________________________ Námskeið fyrir lengra komna (einnig sem undirbúningur fyrir knapamerki 3) Fyrirkomulag:
Lýsing Almennt reiðnámskeið þar sem farið er í æfingar til að bæta hestinn. Bæta samspil knapa og hests. Þjálfa gangtegundir og undirbúningur fyrir keppni. Kennari: Lilja Maria Suska Verð fyrir félagsmenn Neista börn: kr. 25.000 fullorðin: kr. 35.000
Sonja og Katharina
æskulýðsnefnd Skrifað af Selma 20.11.2022 10:44Frá Æskulýðsnefnd NeistaMiðvikudaginn 23. nóv. kl 17:30 verður haldin kynning á námskeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista mun standa fyrir í vetur.
Við hvetjum foreldra, börn og alla sem áhuga hafa á að kynna sér og móta vetrarstarfið að mæta, sérstaklega þá sem ekki hafa tekið þátt á reiðnámskeiðum. Ekki er skylda að vera með reynslu í hestamennsku!!
Við stefnum á að gera fullt af skemmtilegum hlutum í vetur og bjóða upp á nokkrar nýjungar t.d. leiguhesta, æfingakeppni með leiðsögn, afmælissýning Neista, slútt með gistingu, prufudag í janúar (fyrir þau sem eru óákveðin) og skiptimarkað fyrir reiðföt.
Fleiri hugmyndir vel þegnar. Það væri gaman að sjá sem flesta. Ef þið hafið áhuga en komist ekki á fundinn, endilega sendið okkur tölvupóst [email protected] svo að við getum sett ykkur á póstlistann.
Hittumst á kaffistofunni í Reiðhöllinni Arnargerði.
Léttar veitingar í boði. Bestu kveðjur
Katharina og Sonja, æskulýðsnefnd.
Skrifað af Selma 20.11.2022 08:25Uppskeruhátíð Búgreinafélaganna og hestamannafélagsins NeistaGlæsilegi uppskeruhátíð búgreinafélaganna og hestamannafélagsins Neista var haldin 19. nóvember.
Þar voru knapar ársins og sjálfboðaliði ársins verðlaunaðir.
Knapi ársins 2022 í fullorðinsflokki hjá Hestamannafélaginu Neista er Guðrún Rut Hreiðarsdóttir.
Guðrún Rut gerði það gott á árinu, tók þátt í vetrarmótaröð Skagfirðings og félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara í vor. Knapi ársins 2022 í yngri flokkum hjá Hestamannafélaginu Neista er Una Ósk Guðmundsdóttir.
Una átti frábært ár, tók þátt í Gæðingakvöldmóti Skagfirðings, Vetrarmótaröð Skagfirðins, WR Hólamóti UMSS og Skagfirðings, Félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara og Landsmóti hestamanna.
Sjálfboðaliði ársins hjá hestamannafélaginu Neista er Kristján Þorbjörnsson.
Kristján er búinn að vera í reiðveganefnd Neista til fjölda ára, hann er einnig í samgöngunefnd Landsambands hestamanna sem kemur saman einu sinni á ári og fer yfir reiðvegamál hestamannafélaga.
Skrifað af Selma
Flettingar í dag: 955 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 325 Gestir í gær: 18 Samtals flettingar: 926188 Samtals gestir: 88431 Tölur uppfærðar: 31.3.2025 17:19:32 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is